innheimtulaun lögmanna.
Virðulegi forseti. Þegar svar hæstv. ráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur var lesið var ekki hægt að skilja það öðruvísi en að Lögmannafélagið hefði skilaði inn athugasemdum til ráðuneytisins. Ég spyr þá: Hvað er það sem tefur ráðuneytið við að setja þessar reglur?
Nú má vænta þess að lögmenn séu ekki sérstaklega sáttir við að settar séu leiðbeinandi reglur varðandi innheimtukostnað, en ég vísa þá til þess að í þeim athugasemdum sem gerðar voru við frumvarpið þegar það var lagt fram á þingi, m.a. vegna mikillar baráttu verkalýðsfélaga, kemur fram að þetta varðar reglu sem vernda á rétt skuldara við slíka innheimtu, ekki lögmanna heldur skuldara. Þess vegna vil ég brýna hæstv. ráðherra til að drífa í þessu. Nægur tími hefur verið til að setja slíkar reglur og hefur það ef til vill sjaldan verið brýnna en einmitt núna eftir hrun, í því flóði af innheimtumálum (Forseti hringir.) og nauðungarsölum sem verið hafa.