141. löggjafarþing — 106. fundur,  18. mars 2013.

um fundarstjórn.

[12:01]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Hér erum við að byrja að ræða aftur um stjórnarskrá Íslands. Ég verð að segja eins og er að mér finnst Alþingi nálgast þetta verkefni, grundvallarlög landsins, með þeim hætti að það er vitanlega til háborinnar skammar. Það er til háborinnar skammar að menn skuli umgangast stjórnarskrána eins og þetta séu samþykktir fyrir einhvern klúbb úti í bæ, samþykktir þar sem menn geta jafnvel komið fram sínum persónulega vilja. Mér finnst að forseti Alþingis ætti að sjá sóma sinn í því að ljúka þessari vitleysu, ljúka þessu rugli sem Alþingi er orðið hér undir stjórn þessa vonlausa meiri hluta á þingi.