141. löggjafarþing — 106. fundur,  18. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[20:07]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég er í raun með eina spurningu til hv. þingmanns sem snýr að því frumvarpi sem þessi breytingartillaga er flutt við, sem var eins og hv. þm. Árni Páll Árnason og formaður Samfylkingarinnar og 1. flutningsmaður frumvarpsins sagði til að rétta út ákveðna sáttarhönd vegna þeirrar stöðu sem stjórnarskrármálið var í í heild sinni og var auðvitað fallið á tíma. Það frumvarp er mjög skýrt, þ.e. að menn ætli að gera það með því að breyta breytingarákvæðinu til að geta farið í þessa vinnu á næsta ári. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann, sérstaklega í ljósi þess að þessi breytingartillaga er flutt við það frumvarp, þ.e. einn hluti út úr stjórnlagaumræðunni allri, þ.e. ein tillagan sem snýr að auðlindaákvæðinu — ég verð að viðurkenna að þetta slær mig ekki mjög vel — hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að með því að flytja þessa breytingartillögu við málið núna þá sé hálfpartinn verið að skemma frumvarpið.

Við sjáum þá brjáluðu tillögu sem hv. þm. Margrét Tryggvadóttir flutti, að mínu mati er það mjög sérkennileg tillaga að taka heila stjórnarskrá inn í breytingartillögu. Því vil ég spyrja hv. þingmann, ef menn halda áfram með hlutina svona og vilja greiða atkvæði um þetta, er eitthvað sem kemur í veg fyrir að fleiri breytingartillögur komi við 3. umr. í málinu? Væri ekki nær að reyna að klára málið eins og það var lagt upp? Ef svona mikill vilji er innan stjórnarflokkanna að greiða atkvæði um auðlindaákvæðið, af hverju var það þá ekki í frumvarpinu frá formönnum stjórnarflokkanna og hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni, formanni Bjartrar framtíðar? Mér finnst þessi breytingartillaga koma örlítið aftan að málinu í heild sinni eins og frumvarpið er flutt af forustumönnum stjórnarflokkanna.