141. löggjafarþing — 106. fundur,  18. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[21:00]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla aðeins að segja nokkur orð út af því sem hv. þingmaður sagði um ESB-málið, en það kemur mér svo sem ekki á óvart að þingmaðurinn komi í ræðu og nefni það þó að það hafi ekki verið til umfjöllunar. En í kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins frá 2009 sem ég hef lesið segir skýrum stöfum að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu. Það sagði Framsóknarflokkurinn í aðdraganda kosninganna 2009 … (Gripið fram í.) Ég kann hana ágætlega því að ég vann talsvert með hana á vettvangi utanríkismálanefndar sumarið 2009, en það er annar handleggur.

Hv. þingmaður spyr af hverju þurfi að gera breytingu á þeirri grein stjórnarskránni sem fjallar um það hvernig á að breyta stjórnarskrá. Ég tel að sú aðferð sem stjórnarskráin mælir fyrir um um breytingar á stjórnarskránni sjálfri sé þung í vöfum og reynslan hefur sýnt það í gegnum áratugina að stjórnarskránni er sjaldan breytt og aldrei fyrr en undir lok kjörtímabils þegar menn eru kannski komnir í tímaþröng. Ég tel að það væri miklu betra og farsælla að breytingarákvæðið væri eins og hér er lagt til. Hér er lagt til að aukinn meiri hluti Alþingis, 2/3, þurfi að samþykkja breytingu á stjórnarskrá. Það ætti að tryggja að um hana væri tiltölulega breið pólitísk samstaða í staðinn fyrir einfaldan meiri hluta eins og er í dag og síðan færi hún beint í þjóðaratkvæðagreiðslu þannig að þjóðin taki beint og milliliðalaust afstöðu til stjórnarskrárinnar því að það gerir hún ekki í almennum þingkosningum.

Ég tel að sú aðferð sem hér er kynnt til sögunnar sé miklu lýðræðislegri en sú aðferð sem (Forseti hringir.) gildandi stjórnarskrá mælir fyrir um.