stjórnarskipunarlög.
Virðulegur forseti. Þessu er auðsvarað. Það hefur lengi legið fyrir að sá einfaldi ágalli var á ákvæðinu eins og það var hjá stjórnlagaráðinu að það tók undir þjóðareign allar eignir sveitarfélaga sem er auðvitað íhlutun í þeirra málefni sem var óheppileg en það ákvæði sem hér liggur fyrir nær öllum sömu markmiðum og raunar eins og tillaga stjórnlagaráðsins sem var það góð að við tillögu stjórnlagaráðsins nær þetta ákvæði líka yfir orkuauðlindir landsins sem hin fyrri ákvæði um þjóðareign á auðlindum gerðu ekki.
Ég held að almenningur, ég leyfi mér bara að túlka þann vilja almennings, líti svo á að þegar hann kallar eftir þjóðareign á auðlindum Íslands sé hann líka að líta til orkuauðlindanna. Það skyldi þó ekki vera að á Alþingi Íslendinga séu stjórnmálaflokkar sem vilji einkavæða orkuauðlindirnar, séu þess vegna andvígir þessum ákvæðum og muni berjast gegn þeim með öllum tiltækum ráðum? Það skyldi þó ekki vera að á þinginu sé stjórnmálaflokkur sem hafi boðað að það eigi að hefja sölu á eignarhlut ríkisins í Landsvirkjun? Í Landsvirkjun eru geymd vatnsréttindin sjálf, sjálfar orkuauðlindirnar okkar, og það skyldi þó ekki bara vera á dagskrá nú þegar eftir kosningarnar 27. apríl, ef sá stjórnmálaflokkur kemst til valda og ekkert stjórnarskrárákvæði þvælist fyrir honum, að hann hefji bara einkavæðingu á orkuauðlindunum?