141. löggjafarþing — 107. fundur,  19. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[11:43]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar að spyrja hv. þingmann um það sem hann kom inn á í ræðu sinni og sneri að því að auðvitað væri mikilvægt að varðveita þá miklu og góðu vinnu sem hefur verið unnin í málinu. Hana ber að þakka. Eins og við vitum er þetta ný vegferð sem við leggjum upp í, þ.e. að fara að breyta stjórnarskránni á þennan hátt með þeim undirbúningi sem liggur fyrir á þessu kjörtímabili. Mig langar að spyrja hv. þingmann, og vera einlægur í því, þar sem hann hefur verið einn af forsvarsmönnum — og hér situr hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar — forustufólkið í þeirri nefnd hefur auðvitað borið hitann og þungann af vinnunni. Hvað getum við lært af ferlinu, bæði þeir sem hv. þingmaður gerði athugasemdir við að hefðu komið að málinu með einum eða öðrum hætti og líka þeir sem hafa verið að stýra vinnunni? Og þá kannski fyrst og fremst með það markmið og sjónarmið í huga hvernig við gætum nýtt það sem best til framtíðar, hvernig við getum nýtt vinnuna sem hefur farið fram á uppbyggilegan hátt.

Hvað getum við lært af ferlinu? Það er auðvitað merkilegt að láta þjóðina koma að breytingum á stjórnarskránni, sem er ekki gert í dag. Hvernig sér hv. þingmaður að við getum nýtt reynslu af meðförum málsins í þinginu þannig að við náum árangri inn í framtíðina þegar kemur að því hvernig er staðið að breytingum á stjórnarskránni? Síðast en ekki síst: Hvernig getum við sem best varðveitt og geymt vinnuna sem hefur verið unnin í málinu hingað til?