141. löggjafarþing — 107. fundur,  19. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[17:30]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ásbirni Óttarssyni fyrir fyrirspurnina eða andsvarið. Í fyrsta lagi, eins og ég kom inn á varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna, taldi ég það skref vera afturför eða skref aftur á bak. Eins og ég lýsti áðan og hv. þingmaður kom ágætlega inn á voru þær tillögur sem komu fram þar allt of almennt orðaðar og ég sá það í hendi mér að þegar kæmi til þess að útfæra þær á grunni þess sem samþykkt yrði mundi það vera afar erfitt. Við framsóknarmenn höfum lengi talað fyrir mikilvægi þess að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrána og reyndar segir í 1. mgr. laga um stjórn fiskveiða eitthvað í þá veru að auðlindin sé í eigu þjóðarinnar eða sé þjóðareign, menn geta svo deilt um hvort þjóðin geti átt eitthvað eða hvort ríkið fari með eignarhlutinn. Sú útfærsla sem þing nær sér saman um þarfnast mikillar yfirlegu og á einhverjum tímapunkti þarf að sjálfsögðu að stoppa og lenda málinu. Við töldum tillögurnar sem komu frá stjórnarmeirihlutanum, sérstaklega kannski í ljósi þess að verið var að breyta þeim ört, eitthvað sem þjóðþingið gæti ekki samþykkt.

Þess vegna lögðum við til að þær tillögur sem komu fram árið 2000, og náðu því miður ekki í gegn þrátt fyrir að þeir tveir flokkar sem eru núna í ríkisstjórn hefðu væntanlega viljað það á sínum tíma, væru kannski raunhæfur möguleiki, (Forseti hringir.) a.m.k. ágætisinnlegg í umræðuna.