stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni ræðuna í þessari umræðu, (Gripið fram í.) í 2. umr. Í fyrri ræðunni, sem ég hafði ekki tækifæri til að bregðast við, sagði þingmaðurinn eitthvað á þá leið að hann teldi sig óbundinn af hinni ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem átti sér stað 20. október sl., óbundinn af niðurstöðum hennar. Hann taldi sig þar með ekki vera í neinni stöðu til að geta tekið undir það sem ég túlka sem vilja þjóðarinnar til tiltekinna breytinga.
Takist okkur ekki á nokkurn hátt að breyta stjórnarskrá Íslands eða opna fyrir breytingar á næsta kjörtímabili og ef viðræður við Evrópusambandið verða leiddar til lykta á næstu tveimur árum mun koma til þess að fara verður til þjóðarinnar með þjóðaratkvæðagreiðslu. Eins og mál standa í dag getur sú þjóðaratkvæðagreiðsla aldrei verið annað en ráðgefandi. Að lokinni þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu kemur til kasta Alþingis að taka afstöðu til málsins, þ.e. að samþykkja samninginn ef þjóðin hefur goldið honum jáyrði eða segja nei ef þjóðin hefur tekið þá afstöðu.
Nú leikur mér forvitni á að vita hvaða afstöðu hv. þm. Birgir Ármannsson, sem hefur lýst sig andvígan aðild að Evrópusambandinu, mun taka ef ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að Evrópusambandinu leiðir til lykta að þjóðin vill ganga í sambandið. Hvað mun hv. þingmaður, sem er andvígur aðild og hefur ekki lýst sig skuldbundinn til að taka mark á ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslum, gera í því tilviki?