141. löggjafarþing — 107. fundur,  19. mars 2013.

tekjuskattur.

670. mál
[20:12]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Hv. þm. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, fór í gegnum þau vandamál sem nefndin hafði við að glíma í þessu máli. Ég vona að það hafi tekist að finna á þessu góða lendingu með aðstoð bæði gesta og nefndarmanna. Ég vil benda á að í þessu frumvarpi er samstaða hjá efnahags- og viðskiptanefnd, vegna þess að menn heyra kannski of mikið um deilur á Alþingi, en þetta er ekki eina málið sem nefndin hefur verið sammála um. Ég vil undirstrika það. Svo vona ég að sú lausn sem hér er fundin sé raunveruleg og góð lausn.