141. löggjafarþing — 107. fundur,  19. mars 2013.

lokafjárlög 2011.

271. mál
[21:38]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Við erum að ræða frumvarp til lokafjárlaga fyrir árið 2011. Ég vil í upphafi ræðu minnar, áður en ég fer efnislega í örfáa af þeim þáttum sem um ræðir, taka undir það sem kom fram hjá hv. þm. Birni Vali Gíslasyni, formanni nefndarinnar, að gríðarlega mikilvægt er að sú fjárlaganefnd sem tekur við á næsta kjörtímabili haldi áfram því verklagi sem hefur þróast í tvö ár og geri allt til að bæta það enn frekar. Það liggur fyrir að fjármála- og efnahagsráðuneytið fari að herða reglur eða verði stífara á þeim reglum sem gilda í uppfærslu á heimildum og það er vel.

Vinnan í hv. fjárlaganefnd, sem er ekki neinn pólitískur ágreiningur um og mikil samstaða um hvernig skuli vinna, er kannski sönnun þess hversu mikilvægt er að þróa vinnubrögðin í þá átt að við getum unnið meira og frekar saman á faglegum grunni og í mikilli sátt og í samstarfi við framkvæmdarvaldið, þ.e. ráðuneytin. Fyrir nokkru síðan skipuðum við undirhóp í hv. fjárlaganefnd sem fær ákveðin verkefni til úrlausnar og fundar ekki á hefðbundnum tímum hv. fjárlaganefndar heldur á öðrum tímum og jafnvel þegar eru þingfundir, en það er auðvitað samkomulag um það. Undirhópurinn fer vandlega yfir málefni og flytur síðan inn til nefndarinnar þá vinnu sem hefur verið unnin og nefndin afgreiðir málin í framhaldi af því.

Vinnan við lokafjárlögin 2011 er í samræmi við það sem var byrjað á fyrir lokafjárlög 2010. Þá var farið yfir þær millifærslur sem eiga sér stað í frumvarpinu og líka settar fram spurningar um þau atriði sem snúa að því þegar annaðhvort fjárheimildir eru felldar niður eða færðar á milli ára. Það eru, eins og við þekkjum, ákveðnar vinnureglur um það, til að mynda um að færa megi 10% á milli ára, safna því á þremur árum og mest 4% á ári. Það er auðvitað fullt af fjárheimildum sem eru færðar sem fara langt umfram það mark. Við spurðum út í það og fengum svör við því sem við spurðum um.

Nefndarálitið er byggt öðruvísi upp en hefðbundið nefndarálit. Það er kannski í takti við það sem er gert þegar er verið er að fjalla um skýrslur Ríkisendurskoðunar vegna ríkisreiknings. Þá eru settar fram þær hugmyndir og bollaleggingar sem koma fram í hv. fjárlaganefnd og síðan eru birt viðbrögð viðkomandi ráðuneyta við þeim og hvort sem nefndin gerir athugasemdir eða ekki eða telur þær fullútskýrðar eru þær birtar í nefndarálitinu þannig að betra sé að átta sig á þeim.

Ég vil í upphafi ræðu minnar þakka hv. þingmönnum í fjárlaganefnd, og sérstaklega í undirhópnum, við vinnu þessa máls. Ég vil líka þakka þeim starfsmönnum ráðuneytanna sem komu að því sem og nefndarriturunum okkar tveimur sem lögðu auðvitað mikla vinnu í málið með nefndinni eða undirhópnum.

Það er í rauninni hægt að segja að lokafjárlögin séu tvær lagagreinar, annars vegar millifærslur og hins vegar færslur á heimildum. Ég vil vekja athygli á tvennu, annars vegar uppgjörinu í frávikum á ríkistekjunum, þ.e. að hækkun er upp á tæpar 900 millj. kr. á útgjöldum sem skýrist af því að mörkuðu tekjurnar voru hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Það er kannski líka mikilvægt að nefna af því tilefni að mjög breið og góð samstaða hefur verið innan hv. fjárlaganefndar um að taka mörkuðu tekjurnar sem mest út úr fjárlögunum og nánast helst allt sem hægt er til að ná tökum á þeim hlutum. Það blasir við að hér eru ákveðnar stofnanir, sem ég ætla ekkert að telja upp en þær eru nokkuð margar, þar sem eru 900 millj. kr. meira í markaðar tekjur en var gert ráð fyrir í forsendum fjárlaga fyrir árið 2011. Í raun og veru er verið að samþykkja að heimila viðkomandi stofnunum að eyða þeim eða ráðstafa þeim, það er réttara orð yfir það.

Það er þess vegna sem nefndin hefur viljað breyta því fyrirkomulagi að færa mörkuðu tekjurnar inn í ríkissjóð og hafa síðan viðkomandi stofnanir á fjárlagalið. Menn muna eftir umræðunni sem varð hér fyrir einungis örfáum dögum um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið. Ég greiddi atkvæði gegn þeim lögum. Ástæðan var einföld, það var vegna þess að þau gengu gegn vinnu í hv. fjárlaganefnd þar sem var verið að fara í akkúrat hina áttina, að færa markaða tekjustofninn inn í Ríkisútvarpið í stað þess að gera eins og er gert í dag sem gengur gegn þeim markmiðum sem hv. fjárlaganefnd hefur verið að vinna að á undanförnum árum og allt þetta kjörtímabil og allir hv. þingmenn í nefndinni eru sammála um.

Það er ágætt að rifja upp, því að ekki virðast allir átta sig á því í raun og veru, að mörkuðu tekjustofnarnir í fjárlögunum er um 100 milljarðar kr. Það er ekkert deilt um að í raun og veru megi halda því fram að þær fjárveitingar skerði fjárstjórnarvald Alþingis um ákvarðanatöku. Það staðfestist kannski hér þar sem er verið að samþykkja á árinu 2013 því sem var ráðstafað á árinu 2011, upp á 900 millj. kr. Það auðvitað segir sig sjálft og er staðfesting á þeirri umræðu og þeirri niðurstöðu sem hv. fjárlaganefnd hefur komist að. Það var búið að útbúa frumvarp í desember þar sem nefndin ætlaði að flytja breytingar um að færa þær tekjur allar inn í ríkissjóð og gera breytingarnar inn í fjárlagaárið 2013. Það tókst hins vegar ekki að koma því verki í framkvæmd vegna ákveðinnar fyrirstöðu í stjórnarflokkunum, í það minnsta, alla vega var ekki fyrirstaða í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Það er mjög mikilvægt að það verkefni verði klárað til að efla fjárstjórnarvald þingsins.

Í 2. gr. eru felldar niður heimildir og færðar heimildir á milli ára. Þá er ágætt að hafa í huga að heildarfjárveitingar, fjárheimildir ársins 2011, voru um 544 milljarðar kr. en útgjöldin voru 575 milljarðar kr. Útgjöldin voru í raun og veru 31 milljarði meiri en var gert ráð fyrir í fjárlögum og núna er lagt til með samþykkt þessa frumvarps að rúmir 44 milljarðar falli niður og um 13 milljarðar færist yfir á næsta ár, og þá erum við að tala um að það færist í raun og veru yfir á árið 2012. Það kannski sjá allir og gera sér grein fyrir því að það er nánast fráleitt að við samþykkt frumvarpsins sem við erum að fara að samþykkja — og það hefur í raun og veru aldrei verið jafnsnemma á ferðinni heldur oft mun seinna en núna í marsmánuði 2013, skulum við samþykkja upphafsstöðu á árinu 2012 til viðkomandi stofnana. Það er auðvitað umhugsunarefni. Hluti af því að taka mörkuðu tekjustofnana út er að þá er mun einfaldara að gera það þannig að hægt sé að skila ríkisreikningi og lokafjárlögum miklu, miklu fyrr því að það einfaldar þá hluti mjög mikið.

Það er líka gagnrýnt í nefndarálitinu að lokafjárlögin sem um ræðir eru í raun og veru bara þingskjalið og staðfestingin á ríkisreikningnum sjálfum, þótt muni aðeins á þar er það bara þingskjalið. Það segir sig sjálft að það er eiginlega algjörlega vonlaust að hafa það svona.

Þá auðvitað kemur sú spurning fyrst upp í hugann hvað gerðist ef fjárlaganefnd eða þingið mundi vilja grípa eitthvað inn í, til að mynda ef eitthvað gerist í rekstrinum á árinu 2011 er ofboðslega erfitt að gera það á árinu 2013, það er eiginlega alveg absúrd og því verður að breyta.

Svo er það utanumhaldið um mörkuðu tekjurnar sem eru eins og ég segi 100 milljarðar í fjárlögunum. Það hefur komið margoft fram í skýrslum Ríkisendurskoðunar að með því að hafa það svona sé í rauninni verið að skerða fjárstjórnarvald Alþingis og það hefur enginn andmælt því hér.

Síðan er það eftirlitið og hvernig á að halda utan um þá hluti. Mig langar að nefna eitt dæmi, sem ég hef reyndar gert áður í annarri umræðu, sem snýr að fjáraukalagagerðinni fyrir árið 2011. Þá kom í ljós að Umferðarstofa fékk 85 milljónir í fjáraukalögum fyrir árið 2011. Af hverju skyldi það hafa verið? Það gerðist líka árið 2010 og var vegna þess að mörkuðu tekjustofnar viðkomandi stofnunar hrundu af því að innflutningur á bílum og skráningar og allt það var miklu minna en hafði verið á árunum á undan. Þess vegna var sett 85 millj. kr. fjárveiting til Umferðarstofu í fjáraukalögum á árinu 2011. Við vitum að fjáraukalög eru samþykkt í lok árs þannig að í raun og veru var bara verið að samþykkja orðinn hlut, það var ekkert verið að gera neitt annað.

Það sem var merkilegt við þá fjárveitingu var að gerð krafa var um hana og hún var samþykkt þannig. Það kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans við afgreiðslu fjáraukalaga ársins 2011 að gerð yrði niðurskurðarkrafa á innanríkisráðuneytið um sömu upphæð fyrir árið 2012, þ.e. að þessar 85 millj. kr. yrðu skornar aukalega af innanríkisráðuneytinu á árinu 2012. Þannig var breytingartillagan samþykkt í þinginu en henni var aldrei fylgt eftir. Það er í raun og veru samþykkt þingsins sem snýr að þeim hlutum og er síðan ekki fylgt eftir í framkvæmdinni. Það er auðvitað hlutur sem við verðum að breyta inn í framtíðina, að það gerist þannig að klárlega sé farið eftir því þegar menn setja fram skýlausa kröfu eða forsendu fyrir því að veita fjárveitinguna.

Eins og ég sagði áðan, og nefndin hefur gagnrýnt það harkalega, kemur fram í fjárreiðulögunum að leggja á fram lokafjárlög og ríkisreikning samhliða. Það hefur ekki verið gert og því þarf að breyta.

Það er mikilvægt að taka fyrir í umræðunni að síðan kemur skýrsla Ríkisendurskoðunar um ríkisreikninginn og hún þarf að mínu mati að vera klár við undirritun ríkisreiknings af hálfu Ríkisendurskoðunar. Það hafa til að mynda komið fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar mjög alvarlegar athugasemdir, að því er mér finnst, en skýrslan er gefin út á haustmánuðum og skrifað er undir ríkisreikning að vori til. Maður hefur spurt þeirrar spurningar hversu mikið þurfi að vera að til þess að ríkisendurskoðandi skrifi undir reikninginn með fyrirvara. Maður spyr sig líka þeirrar spurningar af hverju skýrslan sé ekki klár og búið að fara í alla vinnuna áður en skrifað er undir ríkisreikninginn. Ég held að það þurfi að vera samhliða og þurfi að breyta því þannig að ríkisendurskoðanda sé kleift að vinna þau verkefni samhliða, það verði að hafa það svo til að ná tökum á þeim hlutum.

Tíminn leyfir mér ekki að fara yfir nema einstaka atriði sem við spurðum um. Ég sagði í upphafi að við birtum bara þá hluti í nefndarálitinu sem við vorum að reyna að kryfja, stöldruðum við og töldum okkur ekki fá nægjanlegar skýringar við eða ekki voru nægjanleg gögn um fyrir hendi hjá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Þess vegna spurðum við í framhaldinu og sendum skriflegar spurningar á fagráðuneytin af því að grunngögnin voru að sjálfsögðu þar. Síðan birtum við það í nefndarálitinu sem við stöldrum við, spyrjum spurninga og birtum svörin. Í mörgum tilfellum er niðurstaða nefndarinnar sú að nefndin telur fullnægjandi skýringar fyrir hendi og gerir ekki frekari athugasemdir. Svo eru reyndar aðrir þættir sem nefndin staldrar við og óskar því eftir frekari gögnum og skýringum.

Mig langar fyrst að staldra við þátttökuna í bókakaupstefnunni í Frankfurt árið 2011. Þar er fluttur 105 millj. kr. halli, sem er aðeins greiddur niður að litlu árið eftir, og því spyr nefndin af hverju ekki er sótt um aukafjárveitingu og svo koma skýringar á því í nefndarálitinu. Það verður líka að geta þess, til að maður sé alveg sanngjarn, að þegar við erum að vinna þá vinnu í upphafi árs 2013 höfum við náttúrlega það sem hefur gerst á árinu 2012. Við höfum því ákveðið forskot á það sem hefur breyst í færslum á liðunum og mikilvægt að það komi fram að fjárlaganefnd hefur betri upplýsingar þar sem við höfum bæði það sem hefur gerst á árinu 2011 og 2012.

Í stuttu máli er svarið að ekki er búið að gera upp verkefnið en það er 105 millj. kr. halli á því. Það hefur nefndin gagnrýnt mikið og er mjög erfitt að fylgjast með nema breyta vinnubrögðunum í þá átt sem nefndin hefur gert í mikilli samstöðu hvað varðar hvernig lokafjárlögin eru afgreidd. Mér er tjáð að það hafi að minnsta kosti ekki verið gert á undanförnum missirum. Ég ætla ekki að fullyrða neitt um hvenær það var gert síðast og þá jafnvel gert enn þá betur.

Maður gerir auðvitað athugasemdir því að mjög erfitt er að fylgjast með ef menn nota lokafjárlögin til að hreinsa upp og gera ákveðna hluti. Það hefur komið gagnrýni frá Ríkisendurskoðun á að lokafjárlögin hafi í gegnum tíðina þróast sem eins konar aukafjáraukalög, þ.e. viðbót á fjáraukalög sem er auðvitað mjög slæmt því að eftirgrennslan og eftirfylgnin er minni og aðstaðan til að kynna sér málin mun erfiðara en við gerð fjáraukalaga, því hafa menn þróast í þessa átt. Niðurstaða nefndarinnar sú að óskað verður eftir frekari upplýsingum um það mál.

Þá komum við að öðrum lið sem er sambærilegur að mínu mati og er heimssýning sem er haldin í Shanghai í Kína. Þar er gert ráð fyrir að fella niður 47 millj. kr. sem er hallinn á því verkefni. Það er mjög sérkennilegt hvernig er staðið að því, t.d. hvernig forsendurnar eru en lagt er af stað í kostnaðaráætlun upp á 620 milljónir og í endanlegri endurskoðun er síðan gerð áætlun um 280 milljónir og er það rakið í nefndarálitinu. Auk þess hefur nefndin óskað eftir viðbótargögnum um þá hluti sem um ræðir.

Auðvitað er margt athyglisvert í nefndarálitinu og ég hvet alla hv. þingmenn til að kynna sér það vel því að ég hef ekki tíma til að fara yfir það í einni ræðu og þyrfti í raun og veru að halda a.m.k. þrjár ef ekki fjórar ræður. Nefndarálitið skýrir sig mjög vel og það er mjög gott að átta sig á því vegna þess að þar eru bæði birtar spurningarnar sem vakna og svörin.

Mér er tjáð að í að minnsta kosti mjög langan tíma hafi ekki verið gert eins og hv. fjárlaganefnd gerir tillögu um, lagðar til breytingartillögur við frumvarpið um lokafjárlög fyrir árið 2011 þar sem fjárheimildir um 222 millj. kr. eru felldar niður. Það er gert í sátt og samstarfi við viðkomandi fagráðuneyti þar sem nefndin óskaði eftir skýringum og svörum um hvers vegna menn voru að fara umfram þá prósentu sem ég nefndi áðan, þ.e. 10% markið. Það verður gert þannig að nefndin gerir athugasemdir og óskar eftir frekari skýringum og ráðuneytið fellst á að fella viðkomandi heimildir niður. Mér er tjáð að ekki hafi verið unnið á þann hátt, einhvern tíma kannski en alla vega ekki nýlega. Þess vegna er mjög mikilvægt að sú fjárlaganefnd sem tekur við í vor haldi áfram þeirri vinnu sem er viðhöfð hér við gerð lokafjárlaga. Það er að mínu mati gríðarlega mikilvægt og að ég held samdóma álit allra hv. þingmanna í hv. fjárlaganefnd sem hafa unnið að því að gera þær breytingar. Mér finnst sú vinna og nefndarálit allrar hv. fjárlaganefndar vera staðfesting á því að þegar menn fara í faglega vinnu í nefndunum og síðan í gott samstarf við framkvæmdarvaldið er hægt að skila, að mínu viti, góðri vinnu eins og hv. fjárlaganefnd gerir hér.