141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

starfsmannaleigur.

606. mál
[10:35]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég fagna því að við ætlum nú að gera þetta frumvarp að lögum því að ég geri ráð fyrir því að allur þingheimur styðji þetta mál. Við erum með þessu frumvarpi að vernda stöðu starfsmanna hjá starfsmannaleigum og koma í veg fyrir félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði.