141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

velferð dýra.

283. mál
[11:15]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða grein er snýr að veiðum á minkum og förgun þeirra. Þetta er eitt af þeim málum sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni vilja skoða áður en málið kemur til 3. umr. þannig að ég mun sitja hjá.