141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

opinber innkaup.

288. mál
[11:20]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Margt í þessum lögum og nefndaráliti er til bóta. Hins vegar er ekki búið að leysa úr vandamáli sem varðar innkaupareglur sem sveitarfélögin hafa sjálf sett sér og hvernig það verður leyst og þess vegna get ég ekki staðið að þessu frumvarpi.