stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Andrúmsloftið hér í þinginu er nú orðið hálfsorglegt svo ekki sé meira sagt. Það er löngu komið fram yfir áætlaðan þinglokadag. Eldhúsdagur er löngu búinn sem er kannski akkúrat vísbending um að rangt var að breyta þingsköpum í þá átt að fastsetja eldhúsdagsumræðurnar í stað þess að eldhúsdagurinn væri lok þingsins að vori. Farið var í þetta og núverandi ríkisstjórn hefur óspart notfært sér að halda eldhúsdaginn, uppskerudag vetrarins, og halda svo bara áfram með þingið nánast eins sett sé nýtt þing. Það er afar slæm þróun og ekki til virðingar fyrir þingið, virðulegi forseti, hvernig meiri hlutinn í þinginu hefur umgengist bæði þingsköp og þingið sjálft.
Hér horfum við stjórnarandstöðuþingmenn upp á að stjórnarliðar eru komnir í stjórnarandstöðu við sjálfa sig. Já, virðulegi forseti, afar einkennilegt er að horfa upp á þetta, sér í lagi vegna þess að kosningar eru í nánd.
Það er skrýtið að verða vitni að því að stjórnarliðar sem sitja í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd koma hér í pontu, kvarta yfir samflokksþingmönnum sínum og segja að þeir hafi ekki verið nógu jákvæðir gagnvart þeirri vinnu sem fór fram allt þetta kjörtímabil og hafi ekki tekið nógu vel undir það sem meiri hlutinn samþykkti í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Virðulegi forseti. Þarna er að ég að sjálfsögðu að tala um gagnrýni hv. þm. Lúðvíks Geirssonar á samþingmenn sína.
Við framsóknarmenn höldum ró okkar. Við stöndum vörð um stjórnarskrá Íslands. Við stöndum vörð um það áhlaup sem hefur verið gert á stjórnskipun Íslands á þessu kjörtímabili, allt frá því að Hæstiréttur ógilti kosninguna til stjórnlagaþings.
Búið er að taka margar hliðarbeygjur í þessu máli. Málinu hefur sífellt verið úthýst úr þinginu og einhverjum öðrum verið falið stjórnskipunarvaldið en þeim sem hafa það eftir að Hæstiréttur úrskurðaði kosninguna ógilda.
Við sitjum uppi með þá afurð í dag, virðulegi forseti, að ríkisstjórnarflokkarnir koma sér ekki saman um lúkningu málsins og þjóðþingið geldur fyrir ósætti innan ríkisstjórnarflokkanna.
Hvers á Alþingi Íslendinga að gjalda að hafa slíka ríkisstjórn, svo ég tali nú ekki um hvers eiga landsmenn að gjalda að hafa slíka óstjórn? Til þess einungis að geta sagt frá því síðar meir í sögubókum að þarna hafi fyrsta vinstri stjórnin á Íslandi lifað kjörtímabil. Fyrr á að fara skríðandi út úr stjórnmálum en að halda þessu svona áfram. Þarna er ekki verið að hugsa um þjóðarhag heldur um hag og orðspor einstakra þingmanna sem sitja í hæstv. ríkisstjórn, því miður.
Síðasti vinkillinn á málinu birtist í gær. Forseti þingsins beitti sér mjög fyrir því á þriðjudaginn að stjórnarflokkarnir mundu koma með eitthvert útspil til að væri hægt að ljúka málinu, ellegar yrði ekki haldinn þingfundur þann 20. mars. Þegar nýkjörnir formenn vinstri flokkanna komu til formannafundar voru þeir ekki með neitt í höndunum annað en yfirlýsingar sem skírskotuðu til stefnu vinstri flokkanna og til þeirrar þingsályktunartillögu sem liggur fyrir þinginu en er ekki á dagskrá þingsins akkúrat núna, fólk getur lesið sér til um það.
Alveg ljóst er að enginn vilji er hjá ríkisstjórnarflokkunum til að ljúka þessu þingi og hleypa þingmönnum út í kosningabaráttuna. Forseti sá sér því þann eina leik á borði að boða ekki til þingfundar í gær þann 20. mars, því var ekki þingfundur eins og allir urðu varir við.
Þingfundur var settur í dag. Við erum búin að standa í atkvæðagreiðslum, í að aðstoða ríkisstjórnarflokkana við að koma góðum málum í gegnum þingið og gera að lögum. Þá eltir draugurinn þingstörfin, þetta vonlausa mál ríkisstjórnarinnar sem er löngu tapað. Það vita allir og jafnvel best þeir sem stjórna atburðarásinni í þinginu núna, nýkjörnir formenn vinstri flokkanna, hv. þm. Árni Páll Árnason og hæstv. ráðherra Katrín Jakobsdóttir.
Það er nefnilega svo, virðulegi forseti, að bæði Samfylkingin og Vinstri grænir eru komnir með tvo talsmenn sinn úr hvorum flokki. Við framsóknarmenn erum til dæmis farin að tala við fjóra vinstri flokka í stað tveggja áður. Svo eru þingmenn utan flokka og þingmenn Hreyfingarinnar. Þetta er afar einkennileg staða og hér ríkir mikil ringulreið, svo það sé sagt. Þetta er ekki bjóðandi.
Draugurinn er kominn til baka og hann liggur fyrir í þessu frumvarpsformi. Nú skal ráðist að því að breyta breytingargrein stjórnarskrárinnar því Samfylkingunni tókst ekki það sem átti að takast á þessu kjörtímabili, að breyta breytingargreininni til þess að afsala valdi þingsins til dæmis til þess að auðveldara væri að koma í gegn ESB-samningi. Vel er við hæfi að rifja upp orð þáverandi formanns Samfylkingarinnar frá árinu 2009, þáverandi hv. þm. Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þegar hún talaði mjög fyrir því að breyta ætti breytingarákvæði stjórnarskrárinnar í þá veru sem liggur nú frammi í þessu frumvarpi, vegna þess að nauðsynlegt væri að á næsta kjörtímabili — þessi orð eru sögð 2009 — væri hægt að breyta stjórnarskránni á þann hátt að fullveldisframsal yrði gert auðveldara.
Árið 2009 ríkti hér mikil ringulreið. Þáverandi hv. formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fór fyrir ESB-málunum í þáverandi ríkisstjórn. Þá var hugsunin sú að koma okkur sem fyrst inn í ESB eftir bankahrunið. Það var eina leið og framtíðarsýn Samfylkingarinnar á þeim tíma og að sjálfsögðu var okkar góða stjórnarskrá mikill steinn í götu Samfylkingarinnar. Þá sem nú, því fyrirheitna landið lætur standa á sér að óbreyttri stjórnarskrá. Fyrirheitna landið ESB bíður handan við hornið og er eina lausn Samfylkingarinnar, en þangað verður ekki gengið inn fyrr en við breytum stjórnarskrá Íslands, þessari stjórnarskrá sem hefur staðist tímans tönn frá 1944. Hún stóðst af sér bankahrunið, stóðst árásina sem þáverandi hæstv. fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fór með í Icesave-málinu eins og allir muna. Hún stóðst þetta af sér eins og kletturinn í hafinu, eins og stjórnarskrár eiga að virka. Stjórnarskrár eru til þess að vernda borgara ríkis gegn ofríki stjórnvalda. Stjórnarskrá á að vera og er kletturinn í hafinu sem gerir það að verkum að hún stenst af sér alla brotsjói.
Ef það er ekki stjórnarskrá Íslands sem hefur staðist af sér þá brotsjói sem við höfum farið í gegnum sem þjóð undanfarin sex til tíu ár þá veit ég ekki hvað. Hún hefur sannað gildi sitt, en þetta er of góður sannleikur til að vera sannur að mati Samfylkingarinnar, því hún vill hafa aðra stjórnarskrá. Hin íslenska Samfylking, hinir íslensku sósíaldemókratar, vill hafa stjórnarskrá Evrópusambandsins sem í daglegu tali kallast Lissabon-sáttmálinn.
Hvers á restin af landsmönnum að gjalda? Á stór meiri hluti landsmanna að lúta vilja sósíaldemókrata á Íslandi? Nei, virðulegi forseti, ekki í stjórnarskrármálinu frekar en í öðrum málum. Ekki í ESB-málinu frekar en í öðrum málum. Ekki í Icesave frekar en í öðrum málum. Þess vegna er mikilvægt að við myndum samstöðu um að standa á móti því áhlaupi sem Samfylkingin er nú að standa fyrir í þinginu.
Virðulegi forseti. Ég er klár í að standa áfram vörð um stjórnarskrána eins og ég hef gert allt þetta kjörtímabil, því henni verður ekki breytt svo auðveldlega af dægurflugum Samfylkingarinnar. Eins og ég sagði áðan er stjórnarskráin okkar kletturinn sem við verðum að byggja á. Allt þetta kjörtímabil hefur Samfylkingin, undir dyggri forustu hæstv. forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, reynt að brjóta þetta plagg á bak aftur. Það er afskaplega ólýðræðislegt. Vopnin sem höfð eru í baráttunni eru þau að þjóðin vilji nýja stjórnarskrá, virðulegi forseti.
Mér finnst þetta vera komið út í mikla frasaumræðu og froðusnakk. Það er jú akkúrat málflutningur Samfylkingarinnar í gegnum tíðina sem byggist á froðusnakki, innihaldslausum loforðum og nýyrðum. Hér nefni ég til rökstuðnings skjaldborg um heimilin, velferðarbrúna. Skjaldborgin breyttist í umsátur um heimilin og velferðarbrúin var aldrei byggð, heldur var henni komið ofan í skurð. Við munum eftir því þegar hæstv. forsætisráðherra, talsmaður aldraðra og öryrkja um árabil, alla þá áratugi sem hún hefur setið á þingi, ruddist inn í grunnbætur þessara hópa með lagasetningu um leið og hún var orðin forsætisráðherra. Hver hefði trúað þessu upp á hæstv. Jóhönnu Sigurðardóttur?
Svona hefur Samfylkingin iðulega hagað sinni kosningabaráttu, komið fram með innihaldslaus loforð og svo sem aldrei þurft að standa í skilum með nokkurn skapaðan hlut. Alveg einkennilegt er, sem einkennir jafnframt Samfylkinguna, að hún telur sig sífellt tala fyrir hönd þjóðarinnar án þess að vita nokkurn tímann þjóðarviljann á bak við sig. Þjóðarviljinn á bak við ríkisstjórnina rættist svo sannarlega og sýndi sig í Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslunum sem var alveg stórkostleg þátttaka í. Fyrsta Icesave-samningnum var hafnað með 98% atkvæða. Talsmenn þjóðarinnar í þeirri atkvæðagreiðslu voru 2% eins og frægt var. 2% sögðu já í þeirri atkvæðagreiðslu, samt telja vinstri flokkarnir sig alltaf tala fyrir hönd þjóðarinnar.
Samfylkingin telur sig tala fyrir hönd þjóðarinnar í ESB-málinu þrátt fyrir að nýleg könnun Samtaka iðnaðarins sýni að 70% vilji ekki ganga í Evrópusambandið. Nýjasta málið er að Samfylkingin telur sig vera talsmann þjóðarinnar í því að færa Reykjavíkurflugvöll upp á Hólmsheiði. Enginn kannast við þær hugmyndir nema Samfylkingin. Hún semur við sjálfa sig í ríkisstjórn og í borginni og er komin með gamlar hugmyndir, gömul kosningaloforð síðan úr borgarstjórnarkosningunum kringum síðustu aldamót, og ætlar bara að framkvæma þær þvert á vilja þeirra sem nota flugvöllinn og þá sem starfa þar og þrátt fyrir öryggissjónarmið.
Vinstri flokkarnir hafa sýnt á þessu kjörtímabili, sem var reyndar löngu vitað, að þeir ætluðu að fara fram og umbylta okkar ágæta landi. Þeir ætluðu svo sannarlega að sýna að vinstri flokkarnir væru komnir í ríkisstjórn og ætluðu að brjóta á bak aftur það kerfi sem meðal annars Framsóknarflokkurinn hefur byggt hér upp í okkar ágæta samfélagi undanfarna áratugi. Rétt er að rifja upp að alltaf hefur verið framfaraskeið í þágu þjóðarinnar þegar Framsóknarflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn.
Þessu til rökstuðnings bendi ég til dæmis á að skrifa átti nýja stjórnarskrá og henda þeirri gömlu. Skrifuð voru ný náttúruverndarlög og þeim gömlu hent. Náttúruverndarlög Vinstri grænna. Vernda átti hálendið svo að enginn ætti að komast þangað nema fuglinn fljúgandi. Á einni nóttu fékk ríkisstjórnin yfir sig 16.000 einstaklinga sem tilheyra útivistarsamtökum á Íslandi. Sisvona gat hún komið 16.000 manns upp á móti sér, ríkisstjórnin sem talar alltaf fyrir hönd þjóðarinnar.
Við skulum ekki tala nema örstutt um rammaáætlun. Fjórtán ára ferli og samstöðu á milli allra flokka var hent út um gluggann og rammaáætlun Vinstri grænna kom þar inn í staðinn. Ríkisstjórnin fékk alla upp á móti sér. Hvað eigum við að telja upp fleira? Ég er búin að minnast á ESB-umsóknina. Með henni er búið að kljúfa þjóðina í herðar niður. Alltaf er haldið uppi ágreiningi í því máli og verið að henda einhverju svona á milli varðandi það að hafa landsmenn sundraða en ekki sameinaða.
Ég er búin að minnast á Icesave. Ég á eftir að minnast á fiskveiðistjórnina. Loforð Samfylkingarinnar í því máli voru þannig að helst átti að breyta fiskveiðistjórnarkerfinu fyrir hádegi daginn sem hún mundi setjast í ríkisstjórn með Vinstri grænum. Hvað hefur gerst? Ekkert nema ósætti, óeirðir, hópum att saman allt þetta kjörtímabil. Heil fjögur ár eru farin í súginn vegna þess að þessi ríkisstjórn vill vera með málin í ófriði en ekki friði.
Þarna er ég búin að telja upp nokkur af þeim stóru málum sem ríkisstjórnin hefur komið með inn í þingið sem hafa farið fram í ófriði.
Afar einkennilegt að svo lítill meiri hluti sé á bak við breytingargrein stjórnarskrárinnar sem nú er lagt til að breyta. Það er vegna þess að málflutningur Framsóknarflokksins og minn sem fulltrúa flokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er sá að stjórnarskrárbreytingar verða að fara fram í sátt. Sérstaklega mikilvægt er að fara fram með stjórnarskrárbreytingar í sátt og ég tel stjórnarskrána ávallt verða að njóta þess vafa að breytingar sem á stjórnarskránni eru gerðar séu óumdeildar vegna þess að stjórnarskráin er klettur í hafinu. Stjórnarskráin er samfélagssáttmáli þjóðarinnar við stjórnvöld.
Ég skal líta fram hjá því að almennum lögum sé breytt í ósátt hér í þinginu. Í almennum lögum birtist pólitískur vilji og stefnumörkun og þá er ég að tala bara um almenna löggjöf sem kannski skiptir minna máli, ekki þessar meginstoðir sem ég taldi upp áðan. Stjórnarskránni verður að breyta í sátt vegna þess að annars ríkir ófriður.
Þetta er eitthvað sem flokkarnir hafa tamið sér. Ég held að þetta útspil með að breyta breytingargreininni sé til þess fallið til að skapa mikinn óróleika allt næsta kjörtímabil, því miður, því það eiga að vera í gildi tvær breytingargreinar að stjórnarskránni. Ég held að landsmenn þrái helst af öllu stöðugleika og framtíðarsýn hér í þessu landi. Eftirspurn er eftir lausnum og hvað eigi að gera til næstu áratuga, en ekki hvað eigi að rífa niður eins og þessi ríkisstjórn hefur svo mikið beitt sér fyrir.
Hvaða framtíðarsýn hefur sú ríkisstjórn sem nú starfar? Ekki nokkra? Jú, þá framtíðarsýn að lifa af kjörtímabilið. Ef það væri ekki komið fram yfir síðasta starfsdag þingsins hefði maður svo sem ekki verið hissa á því að ný frumvörp um frekari skattahækkanir hefðu komið fram. Líklega er það eina kosningaloforð sem Vinstri grænir hafa staðið við, að hækka skatta. Það hefur verið fullefnt en önnur kosningaloforð svikin.
Virðulegi forseti. Óskandi væri að ríkisstjórnarflokkarnir mundu koma sér saman um hvernig ljúka eigi þessu máli. Þeir virðast ekki koma sér saman um það vegna þess að sterkar, háværar og ekki svo mjög fjölmennar hreyfingar innan stjórnmálaflokkanna takast á, enda eru bæði Vinstri grænir og Samfylkingin uppbyggðir sem brotaflokkaflokkar. Margir litlir flokkar hafa komið að stofnun þessara flokka og smáflokkarnir innan þeirra telja sig þurfa að hafa sinn talsmann. Það hefur algjörlega kristallast í þessu máli hér því á stjórnarheimilinu er hver höndin upp á móti annarri. Allt í lagi væri kannski ef flokkana sjálfa mundi greina eitthvað á í málinu, en því miður er líka mikill ófriður og ágreiningur innan flokkanna. Hvernig á að fá tvær stríðandi fylkingar með allt í upplausn innan sinna raða til að koma fram og mynda einhverja breiðfylkingu til þess að ná saman um lyktir á þessu máli? Það er alveg ótrúlegt, virðulegi forseti, að horfa upp á hér á þjóðþingi Íslendinga árið 2013 að vandamál dagsins í dag sé erjur í fyrsta lagi innan Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, í öðru lagi erjur á milli Samfylkingarinnar og Vinstri grænna.
Um þetta hef ég svo sem ekki meira að segja, virðulegi forseti, enda tími minn á þrotum. En ég mátti til með að koma hingað og útskýra hvernig ástandið er í málinu. Því er haldið áfram á þrjóskunni og það er komið í blindgötu.
Virðulegi forseti. Mín heitasta ósk er að þessir aðilar muni setjast niður í dag og reyna að koma sér saman um hvernig þeir ætli að ljúka þessu svo sómi sé að. Ég held í þá von að enn sé hægt að bjarga því sem bjargað verður með því að taka málið af dagskrá og fela þingmönnum á komandi þingi að endurskoða stjórnarskrána með hag landsmanna (Forseti hringir.) að leiðarljósi.