stjórnarskipunarlög.
Frú forseti. Við ræðum frumvarp til stjórnarskipunarlaga, frumvarp sem hefur verið kallað frumvarp formannanna hér í þingsölum, þ.e. frumvarp hv. þm. Árna Páls Árnasonar og Guðmundar Steingrímssonar og hæstv. ráðherra Katrínar Jakobsdóttur.
Ég vil í upphafi máls míns lýsa því yfir að ég er fylgjandi frumvarpi formannanna. Í rauninni má segja að í því horfist formennirnir í augu við þann raunveruleika sem er í málinu, þ.e. að við munum ekki ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskránni á þessu kjörtímabili, en það ferli sem við höfum verið í sé hins vegar einkar mikilvægt og áríðandi að við búum til einhvers konar brú yfir á næsta kjörtímabil og bjóðum þannig næsta þingi að halda áfram með málið.
Ég vil hins vegar taka fram að ég tel þá breytingartillögu sem hefur komið fram frá hv. þm. Margréti Tryggvadóttur í rauninni varla þingtæka og mun ekki styðja tillöguna komi hún til atkvæða. Það er í rauninni afar sérkennilegt að hv. þm. Margrét Tryggvadóttir skuli með þessum hætti beita klækjum sem bæði hún og þingmenn sem hafa verið með henni í þinghópi Hreyfingarinnar á þessu kjörtímabili hafa í rauninni verið að reyna að beita sér gegn. Ég mun ekki styðja þá breytingartillögu komi hún hér til atkvæða.
Öðru máli gegnir hins vegar um breytingartillögu hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur, Álfheiðar Ingadóttur, Árna Þórs Sigurðssonar og Skúla Helgasonar. Þar er um að ræða auðlindaákvæði stjórnarskrárinnar sem hefur verið til umræðu í a.m.k. ein 15 ár. Sú tillaga sem kemur fram þar er samhljóða þeirri tillögu sem kom fram frá hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ástæða þess að ég styð þá breytingartillögu er fyrst og fremst sú að mér sýnist orðið einsýnt að á einhverjum tímapunkti þurfi að greiða atkvæði um auðlindaákvæði í þinginu, fá fram vilja meiri hluta þingsins í því máli og ljúka málinu á einhvern slíkan hátt.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að sá vilji sem kom fram í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október síðastliðinn fer mjög saman með því auðlindaákvæði sem kemur fram þar og ég tel að afar mikilvægt að þetta þing fari ekki heim öðruvísi en að gefa hv. þingmönnum kost á að greiða atkvæði um málið.
Frú forseti. Ég ætla ekki að lengja mál mitt sem neinu nemur en taldi nauðsynlegt að afstaða mín kæmi fram hér. Ég tel raunar mikilvægt að allir þingmenn, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, tjái hug sinn til þessara ákvæða og tillagna í ræðustóli. Það er mikilvægt að þjóðin viti hvar þingmenn standa, einkum og sér í lagi ef þannig verður að við náum ekki að ljúka umræðunni um málið.