stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög áhugaverð og afar gagnleg umræða vegna þess að við þingmenn stöndum nú í þeim sporum að fjalla raunverulega um mál og breytingartillögur sem eru vart þingtækar, í það minnsta ekki samkvæmt samvisku minni gagnvart stjórnarskránni. Það er því þarft að taka þessa umræðu nú, sér í lagi vegna þess að hér er verið að koma inn með breytingartillögur sem eru stórkostlegar breytingar á stjórnarskránni, virðulegi forseti, og hefði átt að leggja fram í frumvarpsformi um breytingar að stjórnarskránni eins og til dæmis þetta auðlindaákvæði sem nú liggur fyrir sem breytingartillaga. Það er náttúrlega fáheyrt að það skuli koma inn á þennan hátt, líka vegna þess að ríkisstjórnarflokkarnir, eða einhver hluti af þeim skulum við segja, telja að það auðlindaákvæði sem nú liggur fyrir þinginu frá þeim sé hið eina rétta auðlindaákvæði sem á að koma í stjórnarskrá, eins og kom fram í máli hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar fyrr í dag í andsvari við mig.
Þessu hafna ég vegna þess að við framsóknarmenn höfum aðrar áherslur varðandi auðlindamálin. Þingið hefði þurft að taka allan veturinn í að ræða það og fá hingað fyrir þingnefndir sérfræðinga á sviði stjórnskipunarréttar, auðlindaréttar og umhverfisréttar til að finna auðlindaákvæði sem mikil og breið sátt væri um og mundi verja hagsmuni þjóðarinnar, hagsmuni allra landsmanna, en ekki að koma með þessa pólitísku slikju inn í stjórnarskrána eins og vinstri menn ætluðu sér að gera í upphafi þessa kjörtímabils. Ég fullyrði það, virðulegi forseti, að setja landinu sína stjórnarskrá sem gengur ekki.
Mig langar til að endurtaka spurninguna til þingmannsins: Hvernig sér hann fyrir sér framhaldið í þessu máli þegar nánast allir eru orðnir sammála um að málið er (Forseti hringir.) komið í enn verri ófæru en það hefur nokkurn tímann verið og þau þingskjöl sem við þurfum að fjalla um (Forseti hringir.) í málinu eru nánast öll óþingtæk?