141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[15:00]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála því sem hv. þingmaður segir í andsvari sínu um að mikilvægt sé að við reynum þó að ná niðurstöðu um þetta breytingarákvæði. Þess vegna sagði ég, og ég talaði mjög skýrt í ræðu minni eða taldi mig a.m.k. gera það, að ef menn ætla að ná sátt um það verða þeir fyrst og fremst að eyða þeirri tortryggni sem er í þingsalnum. Ég ætla ekkert að dæma hver á meiri eða minni sök á henni, það skiptir engu máli ef við ætlum að halda áfram.

Það verður auðvitað að tryggja að frekari breytingartillögur komi ekki á milli 2. og 3. umr., t.d. með því að taka kannski helminginn af öllum breytingum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar inn með breytingum. Svo verður að draga þessa tillögu til baka og tryggja með yfirlýsingum forustumanna og þingflokkanna að ekki komi frekari breytingartillögur og við það verði staðið. Öðruvísi getum við að mínu mati ekki haldið áfram með málið í von um að leysa það heldur verður það eingöngu til að stranda því enn frekar. Það er mín persónulega skoðun.