141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[15:22]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er rétt hjá hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur að mér er þess ekki nokkur kostur að svara fyrir hvað Samfylkingin eða einstakir þingmenn þess ágæta flokks hafa í huga hvað þetta varðar. Ég hef hins vegar áður við þessa umræðu, eins og hv. þingmaður veit, bent á að fyrir þá sem eru mjög áfram um aðild Íslands að Evrópusambandinu er óhjákvæmilegt að gerðar verði breytingar á stjórnarskrá áður en til aðildar kemur. Það má vera að það sé hvati til þess fyrir marga að ýta þessu máli áfram, að minnsta kosti hvað það varðar að hægt verði að breyta stjórnarskránni á næsta kjörtímabili án þess að rjúfa þing og boða til kosninga, það getur vel verið.

Augljóslega er sú hugsun þar að baki að það sé of langur tími að bíða í fjögur ár í viðbót, fullt kjörtímabil í viðbót, eftir því að klára þær stjórnarskrárbreytingar sem viðkomandi þingmenn hafa áhuga á. Í sambandi við ákvæði stjórnarskrárinnar má segja að það séu ekkert endilega innbyggðar tímasetningar eða aðkallandi þörf í svo mörgum tilvikum öðrum en hvað varðar fullveldisframsalið í augum þeirra sem telja rétt að Ísland gangi í Evrópusambandið.

Það er því alveg hárrétt hjá hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur að þetta getur haft áhrif í þessu sambandi þó að ég viti ekkert um annað en bara það sem flutningsmenn tillögunnar sjálfir segja, þ.e. að þeir vilji halda áfram því ferli sem þeir hafa stutt á þessu kjörtímabili. Við hv. þm. Vigdís Hauksdóttir höfum haft annað viðhorf til þeirra mála, en þarna er um að ræða (Forseti hringir.) ákveðna knýjandi tímafresti í augum þeirra sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið.