stjórnarskipunarlög.
Hæstv. forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að þær breytingar sem við gerum á stjórnarskrá verða auðvitað að vera vel undirbúnar, vel ígrundaðar og vel útfærðar. Eftir því sem tíminn líður í umræðum af því tagi skerðist sá tími sem við höfum til að vinna slíka vinnu.
Ákvæðin í stjórnarskránni eru misviðkvæm hvað það varðar. Ég held að öllum sé ljóst að auðlindaákvæði er viðkvæmt. Breytingarákvæði er raunar líka viðkvæmt og ég er sammála hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni um að ekki sé endilega gott að gera stjórnarskrárbreytingar léttari þótt vel megi hugsa sér að gera breytingar á breytingarákvæðinu. Það má vel færa rök fyrir því að það beri að gera einhvern veginn öðruvísi úr garði en það er í dag, t.d. með því að bæta þjóðaratkvæðagreiðslu með einhverjum hætti við ferlið. Eins og ég rakti í ræðu í fyrradag eru ýmis dæmi í stjórnarskrám nágrannaríkja okkar um hvernig hægt er að útfæra slíkt.
Það má segja að því meira sem umræðan færist frá inntaki breytingarákvæðisins sem slíks og fer að fjalla um aðra þætti því snúnara verður fyrir okkur að finna lausn í málinu. Ég verð til dæmis að segja að á fyrri stigum máls hef ég sjálfur og margir, minn flokkur og Framsóknarflokkurinn og fleiri, lýst því yfir að við værum jákvæð gagnvart því að setja inn í stjórnarskrá ákvæði sem fæli í sér heimild kjósenda til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslum um tiltekin mál. Við höfum margoft gefið yfirlýsingar af því tagi að við teldum það æskilegt En ef breytingartillaga um til dæmis slíkt ákvæði kæmi inn í málið núna yrði það auðvitað til að flækja málið enn þá frekar en ekki til að einfalda eða auðvelda okkur að komast að niðurstöðu vegna þess að að sjálfsögðu þyrfti að (Forseti hringir.) hnýta marga hnúta áður en niðurstaða næðist í því máli. (Forseti hringir.) Hæstv. forseti, ég biðst afsökunar á því að hafa syndgað upp á náðina hjá hæstv. forseta.
(Forseti (RR): Enn og aftur beinir forseti þeim tilmælum til hv. þingmanna að þeir virði þann ræðutíma sem þeim er úthlutað.)