stjórnarskipunarlög.
Frú forseti. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að það sem verulega skortir á hér á endametrunum, til að menn geti náð saman, er traust á milli manna. Hina miklu tortryggni má meðal annars sjá í því að þegar þessi tillaga kemur fram — frá hv. þm. Árna Páli Árnasyni, hæstv. ráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, formönnum tveggja flokka, og hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni — koma breytingartillögur við allt aðra grein frá þingflokksformönnum stjórnarflokkanna.
Ég velti því hér upp fyrr í dag hvort það væri leið til að skapa traust að þær breytingartillögur yrðu dregnar til baka sem fram eru komnar. En ég veit að ýmsir eru mjög tortryggnir og engum er bannað að koma fram með breytingartillögur við 3. umr. sem síðan gætu sett málið í uppnám að nýju.