141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[16:25]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Staðan sem uppi er í þessu máli er einfaldlega þannig, eins og ég gat um í máli mínu, að það skortir á hvort tveggja traust og samstarfsvilja. Ég sagði að ekki væri neinum einum um að kenna í þeim efnum, þessi andi svífur bara yfir þessu þingi.

Í mínum huga er þingið orkulaust til að takast á við jafnstórt mál og hér er verið að vinna með. Ég hef verið flutningsmaður að ágætri tillögu sem hv. þm. Pétur H. Blöndal flutti til breytinga á ákvæði í 79. gr., ég hef opnað á það að gera breytingar á svokölluðu breytingarákvæði. Engu að síður er það trú mín að þetta þing geti ekki — það þarf þá eitthvað annað að koma fram sem sannfærir mig um það — lokið þessu viðamikla verki á þeim stutta tíma sem eftir er fram að kjördegi 27. apríl.