141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[16:32]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Forseti. Fyrst varðandi Icesave, af því hv. þingmaður nefndi málið, er ekki rétt að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi hleypt því í gegn, það voru þingmenn í þingflokki Sjálfstæðisflokksins sem greiddu atkvæði gegn því allan kósann. Ég minni líka á afstöðu þingflokks Sjálfstæðisflokksins í síðustu afgreiðslu þess máls sem var tillagan um þjóðaratkvæði. Ábyrgðin á því verki liggur því öll á herðum núverandi minnihlutastjórnar.

Ég er þeirrar skoðunar að neyðarhemillinn sem á að hafa í málinu sé hjá þinginu sjálfu og við eigum að halda í hann. Við eigum að stýra bifreiðinni fram að kosningum. Þá fer fram allt annars konar ökukennsla, ef svo mætti að orði komast. Ég tel að málið sé hjá þinginu, það beri alla ábyrgð á því (Forseti hringir.) sjálft og verði að fullnusta það með þeim hætti að leggja það til hliðar.