stjórnarskipunarlög.
Forseti. Hv. þingmaður virðist vera í þeirri stöðu að vera að efna til málþófs því að hún er komin út í umræður um allt annað en frumvarpið og tillöguna sem liggja fyrir en ég skal eiga skoðanaskipti við hv. þingmann um það. Þegar hv. þingmaður leyfir sér að fullyrða að hér sé meiri hluti fyrir afgreiðslu tiltekinna mála dreg ég það vissulega í efa í ljósi þeirrar reynslu og þeirrar orðræðu sem hefur legið yfir sölum Alþingis í allnokkurn tíma. Það er ekkert launungarmál að hæstv. forsætisráðherra er ekki ýkja hrifinn af þeirri tillögu sem hv. þm. Árni Páll Árnason flutti. Eru þeir tveir ágætu starfsfélagar okkar sammála í því efni? Ég held að samband hv. þingmanns við þingsalinn og einstaka þingmenn í honum sé ekki betra en samband hv. þingmanns við þá þjóð sem hv. þingmaður ræðir svo iðulega um og túlkar vilja hennar. Ég held að algjört rof sé í (Forseti hringir.) því sambandi sem um ræðir.