141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[16:50]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir innlegg hans í þessa umræðu. Ég veit að þingmaðurinn hefur lengi verið áhugamaður um stjórnarskrána, sérstaklega breytingarákvæðið. Ég hef heyrt þingmanninn tala um að það sé jafnvel nokkuð auðvelt að breyta stjórnarskrá Íslands. Tek ég alveg hreint undir það með honum vegna þess að íslensku stjórnarskránni er auðveldast að breyta af öllum stjórnarskrám Norðurlandanna, þannig að það sé sagt og því komið hér á framfæri. Þetta fyrirkomulag hefur reynst mjög vel, að samþykktar séu stjórnarskrárbreytingar í sem mestri sátt í þinginu, síðan eru alþingiskosningar og nýtt þing samþykkir stjórnarskrárbreytingarnar frá fyrra þingi, eins og þingmaðurinn fór yfir.

Hann leggur fram tillögu um að í millitíðinni fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla sem þarf 50% kosningarbærra manna að taka þátt í til að frumvarpið fái það gildi að það fari sem frumvarp aftur inn í þingið. Þetta er ágæt leið að mínu mati. Þarna er útfærð betur leiðin sem ég tel að sé innbyggð í stjórnarskránni nú þegar, því ég lít svo á að Alþingiskosningarnar séu þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrárbreytingar. Þess vegna er sáttin svo mikilvæg. Þingmenn eru kjörnir eftir fulltrúalýðræðisreglunni og því endurspeglast vilji landsmanna í þingsal. Með tillögu hv. þingmanns er verið að bæta inn í ferlið þjóðaratkvæðagreiðslu.

Í framhaldi af þessu langar mig að spyrja þingmanninn að því hvað honum finnist um að hafa þetta góða ákvæði, breytingarákvæðið í gildandi stjórnarskrá sem ég hef farið yfir, og síðan komi, eins og er í þeirri tillögu sem við ræðum í dag, jafnframt hliðarákvæði við breytingarákvæði (Forseti hringir.) stjórnarskrárinnar, það eigi að vera tvö jafnsett breytingarákvæði í gildi. Hvað finnst þingmanninum um þetta (Forseti hringir.) hlaðborð sem lagt er til?