stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ef við ætlum að hafa þrjár umræður um mál er kannski erfitt að leyfa ekki breytingar á milli 2. og 3. umr. Það má segja að við gætum alveg eins lokið umræðu og afgreiðslu mála eftir tvær umræður. Auðvitað þarf að nálgast þetta með öðrum hætti. Það þarf að vera þannig á hinu háa Alþingi, virðulegi forseti, að menn geti treyst hver öðrum. Það er algjört grundvallaratriði. Það hefur verið þannig, sem betur fer, í gegnum tíðina að orð hafa haldið milli forustumanna flokka.
Hæstv. forsætisráðherra líkti stjórnarheimili sínu á þann veg fyrr á þessu kjörtímabili að það væri eins og að safna og smala saman villiköttum. Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar ástandið á stjórnarheimilinu er þannig. Þegar slíkir flokkar veljast saman við stjórn og hafa ekki traustari grunn en raun ber vitni í ríkisstjórnarsamstarfinu, sem við nú búum við, er hætta á þessu. Það á að vera okkur lexía að í raun og veru er þessi ríkisstjórn að mörgu leyti óstarfhæf. Þótt hún hafi fengið traustsyfirlýsingu þegar vantraust var borið fram á hana segir það enga sögu. Það sjáum við endurspeglast í þeim vinnubrögðum sem við upplifum núna. Loforðin hafa verið svikin á þessu kjörtímabili, ekki bara innan Alþingis heldur líka gagnvart aðilum vinnumarkaðarins (Forseti hringir.) sem hafa slitið stjórnmálasambandi við meiri hlutann. Þess vegna ríkir vantraust og við búum við þessa alvarlegu stöðu. Eina lausnin, virðulegur forseti, er að þú takir þetta mál, frestir umræðu um það og látir þá leysa það sem bera á því ábyrgð að koma málinu áfram (Forseti hringir.) og við tökum til við vinnu okkar við önnur mál.