141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[21:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er náttúrlega meira undir í umræðunni en 79. gr., vegna þess að hér hefur hv. þm. Margrét Tryggvadóttir sett inn breytingartillögu sem er ansi víðtæk. Hún ein og sér opnar auðvitað á miklu víðtækari umræðu um málið.

Ég kom inn á það í ræðu minni fyrr að hv. þm. Pétur Blöndal hefur viðrað hér hugmyndir og kynnt fyrir okkur í dag hugmyndir um mjög háa þröskulda fyrir þingið og þjóðina til að takast á við við breytingar á stjórnarskránni, grundvallarlöggjöf okkar. Ég var einmitt að velta því fyrir mér í hvaða farveg það hefði sett málið ef við hefðum búið við slík ákvæði í stjórnarskránni núna á þessu kjörtímabili. Það hefði sett þingið í þá stöðu að það hefði þurft að fara í þessa vinnu í miklu meiri sátt. Ég er að mörgu leyti mjög hrifinn af því sem hv. þm. Pétur Blöndal er að kynna hér (Forseti hringir.) til leiks, vegna þess að ég er sammála því að þegar við förum í breytingar á stjórnarskránni eigi þingið að vera bundið skilyrðum til að vinna þær í sem víðtækastri sátt.