velferð dýra.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður ætti þá líka að spyrja þeirrar spurningar hvort hún telji til dæmis að það frumvarp sem við fjöllum nú um hafi á sínum tíma verið lagt fram vitandi vits um það að það gengi gegn hugmyndum manna um dýravelferð. Ætlar hv. þingmaður það að hæstv. ráðherra hafi ekki kynnt sér þau sjónarmið? Ætlar hv. þingmaður að halda því fram að sú niðurstaða sem fékkst við undirbúning þess frumvarps hafi á einhvern hátt verið í því fólginn að slá af sjónarmiðum gagnvart dýravelferð í landinu?
Ég flutti fyrir því efnisleg rök áðan að hægt væri að sýna fram á það að sú leið sem við hv. þm. Jón Gunnarsson erum að boða með þessari breytingartillögu um að við geldingu grísa skuli ávallt beita verkjastillandi lyfjagjöf, og við klippingu á skotti og geldingu grísa yngri en vikugamalla skuli jafnframt beita verkjastillandi lyfjagjöf. Og að sú staðreynd að ef farin yrði sú leið sem frumvarpið boðar núna eftir 2. umr. væri mikil hætta á því, að minnsta kosti á minni búunum, að þær aðgerðir færu fram á eldri grísum og væri þess vegna meira inngrip í dýrin en ella væri með þeim hætti sem við erum að boða. Það eru þessi sjónarmið sem vegast hér á. Hv. þingmaður á ekki að vera að reyna að gera mér upp þá skoðun að ég sé að tala fyrir einhverju dýraplageríi þegar ég er ekki að gera það.
Ég er einfaldlega að tala fyrir því að búið sé að sýna fram á það með rökum að ekki séu praktískar forsendur til þess að ganga í þá átt sem frumvarpið gerir ráð fyrir eftir 2. umr. Og þess vegna sé skynsamlegra að hverfa til baka til þess fyrirkomulags sem frumvarpið sjálft gerir ráð fyrir sem var flutt að mjög yfirveguðu ráði, eftir að fram fór mikið samráð, eftir að menn höfðu kynnt sér þau sjónarmið sem komu fram síðan hjá nefndinni í gagnstæða átt og komust síðan að þeirri niðurstöðu að skynsamlegast væri, meðal annars út frá sjónarmiði dýravelferðar og örugglega fyrst og fremst út frá sjónarmiði dýravelferðar, að fara þá leið sem frumvarpið boðar og við hv. þingmaður erum að leggja til.