tilkynning um dagskrártillögu.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Til forseta Alþingis
26. mars 2013.
Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapa, að fremst á dagskrá næsta þingfundar verði 450. mál, frumvarp til stjórnarskipunarlaga, auk annarra mála sem eru á dagskrá þessa fundar.
Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu fyrir lok þessa þingfundar.“
Undir þetta bréf rita Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari.