velferð dýra.
Forseti. Mér finnst ánægjulegt að við séum að afgreiða þessi lög. Eins og fram hefur komið hefði ég viljað ganga lengra. Ill meðferð á dýrum er ávallt óásættanleg. Verksmiðjubúskapur er ill meðferð á dýrum og mér finnst hryggilegt að við höfum ekki gengið lengra í því að tryggja að betur sé farið með þessi dýr.
Ég fagna breytingartillögum sem munu koma fram á eftir og hvet þingmenn til að kynna sér þann veruleika sem svín og kjúklingar búa við hér á Íslandi. Það er í engu öðruvísi en t.d. í Bandaríkjunum.