141. löggjafarþing — 111. fundur,  26. mars 2013.

velferð dýra.

283. mál
[16:29]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég er sammála síðasta hv. þingmanni. Ég tel að í reglugerðum, ekki aðeins þeirri sem hér um ræðir heldur í öllum reglugerðum, sé nauðsynlegt að gæta samræmis við öll ákvæði frumvarpsins eða laganna eins og hér um ræðir ef þetta verður samþykkt svona. Ég get því ekki stutt tillögu hv. þingmanns.