141. löggjafarþing — 111. fundur,  26. mars 2013.

lokafjárlög 2011.

271. mál
[16:32]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. þingmönnum í fjárlaganefnd fyrir gott samstarf við vinnslu þessa máls og ekki síður starfsmönnum nefndarinnar. Ég vil minna á það enn og aftur að akkúrat núna erum við að samþykkja fjárveitingar upp á 900 millj. kr. inn í markaðar tekjur fyrir árið 2011. Með samþykkt þessa frumvarps er verið að samþykkja 900 millj. kr. útgjöld vegna markaðra tekna sem reyndust hærri á árinu 2011. Og ég held að það sjái það allir sem vilja hversu mikilvægt er að breyta þessum mörkuðu tekjustofnum í frumvarpinu því að þetta er enn ein staðfestingin á því að Alþingi sé að gefa heimild sína í lok mars 2013 fyrir þeim fjármunum sem var ráðstafað og eytt á árinu 2011.