141. löggjafarþing — 111. fundur,  27. mars 2013.

stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.

618. mál
[03:15]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Við erum að ræða frumvarp til laga um breytingar á lögum um stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Ég er reyndar með fyrirvara á nefndarálitinu sem allir nefndarmenn skrifa undir fyrir utan þann sem talaði síðast og fyrirvarinn er kannski almenns eðlis.

Ég vil segja í upphafi að auðvitað er mjög mikilvægt að hv. þingmenn geri sér grein fyrir því í hverju lögin og breyting á þeim felast. Það er í raun og veru ekki verið að taka ákvörðun um að fara í framkvæmdina. Það kemur mjög skýrt fram í síðustu setningum frumvarpsins að ekki er verið að taka ákvörðun um að fara í framkvæmdir né að skuldbinda ríkissjóð eða útgjöld úr ríkissjóði, þannig að það sé alveg á hreinu og fari ekki á milli mála.

Mér fannst gæta ákveðins misskilnings hér á undan um að verið væri að taka ákvörðun um að fara af stað með verkefnið. Það er mikilvægt að það komi fram. Frumvarpið eins og það kom inn í hv. fjárlaganefnd var með þeim ákvæðum að verið væri að snúa af þeirri braut að fara svokallaða leiguleið eða einkaframkvæmd, eins og það heitir í raun, en sá möguleiki var skilinn eftir fyrir hæstv. ráðherra að fara í tiltekna og skýrt afmarkaða minni byggingarhluta og er talað um þrjú atriði. Í fyrsta lagi sjúkrahótelið, í öðru lagi bílastæðahúsið og inni í því eru skrifstofubyggingarnar sem er útlitsmyndin á bílastæðahúsinu út á Barónsstíginn. Hæstv. ráðherra hefði getað tekið ákvörðun um að fara þá leið ef hann teldi það þjóna heildarhagsmunum verkefnisins en með breytingartillögu meiri hluta hv. fjárlaganefndar er sett inn ákvæði um að hæstv. ráðherra geti ekki undirritað slíka samninga öðruvísi en að koma með sérlög inn í þingið um þá. Það er mjög mikilvægt að hafa það svona, hv. fjárlaganefnd hefur staðið þannig að hlutunum og þess vegna kemur málið aftur inn núna. Þegar hlutafélagið var stofnað 2010 og lögin um það var gerð sú breyting að gert var að skilyrði að það kæmi inn til þingsins í sérlögum. Þetta tel ég grundvallaratriði og er ekki deilt um það í hv. fjárlaganefnd að þannig skuli hlutirnir vera.

Það er mikilvægt að átta sig á því að menn töldu skynsamlegt að fara hina svokölluðu leiguleið og þegar skrifað var undir samkomulag við gerð samnings Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar á sínum tíma var reiknað með að fara þá leið. Það sem ýtti ákvörðuninni inn á á þá braut var kannski fyrst og fremst skilyrði frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það skiptir ekki öllu máli. Ég hef haft miklar efasemdir um að fara svokallaða leiguleið eða einkaframkvæmdaleið vegna þess að í raun og veru þýðir það að einhver ákveðinn aðili byggir viðkomandi húsnæði og endurleigir síðan ríkinu. Þá þarf að átta sig á því að við erum með allan tækjabúnaðinn í eigu ríkisins og svo er það mannauðurinn þannig að það voru bara byggingarnar utan um verkefnið. Ég hafði sjálfur alltaf miklar efasemdir um að fara þá leið, að fara í einkaframkvæmd, og taldi að ekki væri hægt að fá fjármagn á betri kjörum en ríkið gæti fengið sjálft. Fyrir utan það væri ávöxtunarkrafa frá viðkomandi fyrirtæki sem byggði húsnæðið og endurleigði síðan ríkinu.

Það er líka mjög mikill kostur við að setja þetta í opinbera framkvæmd að þá fer það bara hefðbundna leið í gegnum fjárlög á hverjum tíma. Það gefur augaleið að þá fellur það undir lög um opinberar framkvæmdir sem er mikill kostur að mínu viti.

Það er ágætt að rifja upp hversu mikilvægt er að þetta komi inn til Alþingis á hverjum tíma. Við þurfum ekki annað en að hugsa til Hörpunnar sem kom í raun og veru í gegnum 6. gr. heimild og það sem við höfum lært af því er að þeir hlutir mega ekki gerast aftur. Í raun og veru er ég fylgjandi því að þetta mál nái fram að ganga, þannig að það sé alveg á tæru, enda er ég á nefndarálitinu.

Mig langar aðeins að gera að umtalsefni, og setja hlutina í smá samhengi, að þetta er ein stærsta ef ekki stærsta opinbera framkvæmdin sem hefur verið ráðist í. Það er ágætt að setja það í samhengi að heildarkostnaðurinn við framkvæmdina, endurbyggingar á húsnæði, tækjakostur og fjármagnskostnaður er jafnmikill og vaxtagreiðslur ríkissjóðs í eitt ár. Þess vegna er að mínu viti mjög mikilvægt að forgangsraðað verði í ríkisfjármálunum til þess að hægt sé að fara í bráðnauðsynlegar framkvæmdir. Það felur ekki í sér að taka skóflustungur að einhverjum vitleysisframkvæmdum úti um allan bæ, framkvæmdir sem að mínu mati geta alveg klárlega beðið. Við getum sett það í samhengi hvort sé mikilvægara að bregðast við því neyðarástandi sem ríkir á Landspítalanum eða byggja Hús íslenskra fræða. Við getum ekki og megum ekki leyfa okkur að halda að greitt sé úr mismunandi ríkissjóðum, það kemur auðvitað allt úr sama kassanum.

Ég vil líka taka fram að mín skoðun er að ekki séu miklar deilur um, og að það sé almenn skoðun allra í þjóðfélaginu, að starfsfólk og stjórnendur Landspítalans hafi staðið sig einstaklega vel við mjög erfið skilyrði. Við höfum fengið fréttir af því hvernig aðstaðan er þar og að hálfgert neyðarástand ríki vegna hennar. Við hljótum að þurfa að bregðast við af því að við gerum þær kröfur að vera með annars konar heilbrigðisþjónustu en stefnir í núna.

Það er mjög mikilvægt í því verkefni að stjórnvöld veiti móralskan stuðning svo ekki verði hreinlega atgervisflótti úr heilbrigðisstéttunum. Við höfum séð og vitum við hvaða aðstæður fólk vinnur og við því verður að bregðast á einn eða annan hátt. Ég vil líka ítreka að þetta verkefni, bygging Landspítalans, snýst eingöngu um það. Hún snýst ekki um að leggja niður önnur sjúkrahús heldur eingöngu um þann rekstur sem er á Landspítalanum. Það er mikilvægt að það komi fram. Hins vegar þarf auðvitað að endurskoða heilbrigðisþjónustuna í heild sinni. Ég er alveg sammála því að mikilvægt er að það verði gert, en verkefnið eins og það er sett upp snýr eingöngu að rekstri á Landspítalanum sjálfum.

Við verðum að átta okkur á því að Landspítalinn er ákveðin endastöð fyrir alla landsmenn, þ.e. hann er opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins. Honum er ekki lokað eða einhverjum deildum þar heldur er alltaf ákveðin bráðaþjónusta. Ef lokað er á landsbyggðinni fara sjúklingarnir á Landspítalann. Það er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því.

Það er gríðarlega mikilvægt fyrir hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar sem taka við hér og koma til með að fylgja málinu eftir á næsta kjörtímabili og næstu kjörtímabilum að átta sig á þeirri stöðu sem getur komið upp. Hún getur orðið grafalvarleg vegna þess að við getum lent í mjög neikvæðum spíral, eins og ég hef stundum orðað það, sem við getum algerlega misst stjórn á. Ég held að það sé umhugsunarefni fyrir okkur öll. Við fáum auðvitað fregnir af því og vitum að fólk sem er menntað í sérfræðigreinum í lækningum kemur í raun og veru inn í allt annað umhverfi þegar það kemur til landsins, þ.e. læknarnir sem eru að læra koma inn í skilyrði sem þeir þekkja sig ekki í vegna þess að við höfum ekki náð að fylgja því eftir að kaupa þau tæki sem þarf. Það er líka aðstaðan sem hefur gert að verkum að það hefur ekki verið hægt. Endurnýjun á húsnæði og nauðsynleg endurnýjun á sumum tækjakosti Landspítalans helst klárlega í hendur og það er mikilvægt að hafa í huga þegar menn ræða um framkvæmdina. Ég vil líka að í umræðunni komi fram það starfsumhverfi sem starfsfólk á Landspítalanum vinnur í við mjög erfið skilyrði, við sjáum í fréttum að fólk liggur á göngum. Maður hugsar auðvitað með sér að ef eitthvað kæmi fyrir er kannski búið að hindra flóttaleiðir og annað. Það er því mikilvægt að menn geri sér grein fyrir alvarleika málsins.

Margir sjúklingar sem liggja inni á Landspítalanum eiga betur heima á hjúkrunarheimilum en Landspítalinn hefur ekki fengið sérstakar greiðslur fyrir það, eins og til að mynda tvær aðrar heilbrigðisstofnanir hafa fengið. Þær hafa fengið viðurkenningu fyrir að sjá um þann hluta og það er mikilvægt.

Áður en ákvarðanir eru teknar þarf að sjálfsögðu að fara mun betur yfir málið í heild sinni. Það þýðir ekkert fyrir hv. þingmenn að koma hingað upp og tala um að það þurfi, eins og hv. þm. Höskuldur Þórhallsson gerði áðan, mér finnst í raun og veru mjög ódýrt að ætla að sleppa þannig frá þeirri umræðu. Síðast en ekki síst vil ég segja að þetta mál hér og þær upplýsingar sem komu fram í hv. fjárlaganefnd við samþykkt frumvarpsins undirstrikar að mínu viti enn og aftur mikilvægi þess að við förum að forgangsraða í ríkisfjármálunum, verja þær grunnstoðir sem eru okkur mikilvægastar, hættum að eyða peningum í vitleysisframkvæmdir og bruðl og snúum okkur að því að sinna mikilvægum grunnstoðum.

Ég ítreka það sem ég sagði í upphafi um að starfsfólk Landspítalans hefur staðið sig gríðarlega vel við mjög erfiðar aðstæður og á þakkir skildar fyrir. Það er líka mjög mikilvægt að starfsfólkið fái pólitíska stuðning um að menn ætli að halda áfram með verkefnið þó svo hér sé ekki verið að taka ákvörðun um fjárútlát heldur einungis um að halda áfram á þessari braut. Það hefur verið unnin töluvert mikil vinna og þarf að vinna enn frekar áður en menn geta hugsanlega tekið endanlegar ákvarðanir. Það er líka mikilvægt að farið verði mjög fljótt í það verkefni, þ.e. að það liggi fyrir þegar menn fara að taka ákvarðanir að búið að fara með gagnrýnum hætti yfir hlutina. Auðvitað er þessi framkvæmd ekkert óumdeild og því þarf að setja vinnuna strax í gang þannig að menn geti tekið rökræðu á eðlilegum grunni í stað einhverrar umræðu þar sem vinna við undirbúninginn er ekki nægileg, svo menn geti tekið upplýstar ákvarðanir um að fara þessa leið.

Að lokum segi ég að ég tel þetta spor í rétta átt og sérstaklega fagna ég því að við séum að snúa leiguliðaeinkaframkvæmd yfir í opinbera framkvæmd því að þá kemur það ekki inn á fjárlögin. Ef ráðherrann sem hefur heimild til að halda þessum þremur byggingum, sem eru auðvitað mjög einfaldar og allt öðruvísi en að byggja utan um sjúkrahúsið og þá starfsemi, verður það að koma með sérlögum inn í þingið áður en ákvörðun er tekin. Það er auðvitað grundvöllurinn fyrir því að ég styð málið fyrir utan það að auðvitað er mikilvægt að við sinnum þeirri skyldu okkar að standa að baki öflugs landspítala.