141. löggjafarþing — 112. fundur,  27. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

641. mál
[14:27]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gott að heyra hér frá hv. þingmanni að hún hefur dregið til baka stuðning sinn við frumvarp Péturs H. Blöndals og Margrétar Tryggvadóttur um þann mjög svo háa (Gripið fram í.) þröskuld sem þar var lagður til, 50% samþykkisþröskuld. Ég ítreka að ég hefði ekki stutt slíka tillögu og hefði ekki sett nafn mitt á hana.

Hv. þingmaður dregur hér inn á hvaða forsendum hverjir hafi komið að því að setja skilyrði um þennan samþykkisþröskuld í samningaviðræðum. Báðir stóru stjórnarandstöðuflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, voru andvígir því að málið gengi fram óbreytt og gerðu báðir að skilyrði að á því yrði breyting. Þeir voru ekki tilbúnir að hleypa okkur til atkvæðagreiðslu með málið óbreytt, hvorugur flokkurinn. Tilraun okkar til að halda þessum glugga opnum endurspeglar þá staðreynd. Við gerum allt sem mögulegt er til að það sé þá opinn gluggi fyrir stjórnarskrárbreytingar á næsta kjörtímabili.

Hv. þingmaður spyr um tölfræðina í málinu. Það er alveg rétt að þjóðkirkjuákvæðið hefði ekki komist yfir þennan samþykkisþröskuld. En við bendum á það í greinargerð með breytingartillögunni að það er hægt að auka líkur á að þátttaka sé mikil og jafnvel þó að mikill ágreiningur væri mundi hefðbundin kosningaþátttaka duga til þess að einfaldur meiri hluti réði ef þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram samhliða (Forseti hringir.) til dæmis sveitarstjórnarkosningum eða forsetakosningum sem verða háðar á næsta kjörtímabili, 2014 og 2016.