stjórnarskipunarlög.
Forseti. Við ræðum breytingartillögu við frumvarp til stjórnarskipunarlaga frá flutningsmönnum sjálfum. Hún er flutt eftir samningaviðræður við svokallaða stjórnarandstöðu í þessu þingi. Mér er þetta mál mjög kært, þ.e. ekki þessi breyting eða það frumvarp sem þessi breytingartillaga tilheyrir, heldur það frumvarp sem við höfum unnið hér að, ekki bara í þinginu heldur úti um allt samfélag í tvö ár.
Við sem höfum haldið á því máli höfum þurft að þola ýmislegt. Það hefur verið sagt að þetta sé ófaglegt ferli, amatörslegt, illa ígrundað, það vanti alla sérfræðiþekkingu í málið, þetta sé óraunhæfur óskalisti og að það eigi algjörlega eftir að fara yfir þetta. Síðustu tvo þingvetur höfum við verið að vinna þetta hérna í þinginu og við höfum kallað til alla sem vilja taka þátt í þessari umræðu, við höfum beðið fólk um að senda okkur umsagnir og höfum leitað til færustu sérfræðinga hér á Íslandi sem og erlendis. Við bárum þetta plagg undir Feneyjanefndina og við höfum unnið úr þeim niðurstöðum og tekið þetta allt saman til greina. Um einmitt þessa grein stjórnarskrárinnar höfum við til dæmis rætt við Bruno Kaufmann og Daniel Schily sem eru miklir sérfræðingar í beinu lýðræði.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur vandað sig og ég veit að stjórnlaganefnd vandaði sig og ég veit að fólkið, 950 manns sem mættu á þjóðfundinn, var að vanda sig sem og stjórnlagaráð. Okkur hafa borist tugir, ef ekki hundruð, umsagna frá sérfræðingum og almenningi, áhugamönnum sem allir voru að vanda sig og gera sitt besta. Ég veit að kjósendur sem mættu tvisvar á kjörstað, annars vegar til að velja úr hópi ríflega 500 manna sem vildu sitja á svokölluðu stjórnlagaþingi, voru að vanda sig, lögðu mikið á sig til að velja sína fulltrúa, og hins vegar þeir sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október sl. Þeir lögðu á sig vinnu við að mynda sér skoðun og mæta á kjörstað.
Eftir allt þetta faglega ferli sem hefur haldið á öllum þráðum í þinginu og við höfum lagt nótt við dag koma menn og draga tillögu upp úr hatti sem er illa ígrunduð og gerir málið mun verra en ef hún væri hreinlega ekki sett fram. Núna væri betri kostur að gera ekkert en að samþykkja þessa tillögu. Að mínu mati útilokar þessi breyting stjórnarskrárbreytingar á næsta kjörtímabili vegna þess að samþykkisþröskuldurinn er of hár. Auðvitað erum við ekki að loka fyrir leið sem er í núgildandi stjórnarskrá en ég held að stjórnvöld sem eru nægilega lýðræðislega sinnuð til að vilja halda þessu starfi áfram muni alltaf frekar velja lýðræðislegu leiðina, þ.e. að fá samþykki þjóðarinnar fyrir þessu sem eiginlega lokar hinni leiðinni sjálfkrafa. Þar búum við líka við það sem er að gerast núna, að það er innbyggð tímapressa í málið.
Hvað er samþykkisþröskuldur? Og er hann svo slæmur? Nei, hann er ekkert svo slæmur því að þeir geta verið ágætir og eru miklu betri að mínu mati en þátttökuþröskuldar. Ef hann er hæfilegur geta þeir sem heima sitja ekki haft áhrif á niðurstöðuna með því að sitja heima. Með hæfilegum samþykkisþröskuldi er ekki hægt að kjósa með rassinum og hann tryggir að þeir sem vilja raunverulega hafa áhrif á málin mæti á kjörstað og að minni hlutinn ráði ekki úrslitum. Minni hluti þátttakenda má aldrei ráða úrslitum í þjóðaratkvæðagreiðslu, en þátttökuþröskuldur má alls ekki vera of hár. Áðan var í andsvari fjallað um hvað gerist ef þátttökuþröskuldur er of hár í umdeildum málum. Þá þarf gríðarlega mikla kosningaþátttöku og kannski meiri kosningaþátttöku en við höfum séð í síðustu kosningum. Þær eru þrjár, þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrána sem var rétt undir 50%, síðustu forsetakosningar þar sem þátttaka var 69,3% og svo síðustu sveitarstjórnarkosningar þar sem þátttaka var sögulega mjög lítil, og enn minni þar sem eingöngu voru í framboði gömlu flokkarnir og engin ný framboð. Svo virtist sem nýir valkostir tosuðu þátttökuna upp.
Ég hef ekki síður áhyggjur af þetta háum samþykkisþröskuldi þegar um er að ræða léttvægar og smávægilegar breytingar á stjórnarskrá eins og ef við þyrftum til dæmis að breyta einhverjum tæknilegum atriðum sem væri mjög erfitt að fá 40% þjóðarinnar til þess hreinlega að leggja á sig að fara á kjörstað til að greiða atkvæði um, eitthvað sem fólk sér ekki að hafi áhrif á líf þess sjálfs. Fólk hefur ýmislegt annað að gera á laugardögum. Það þarf að sinna börnum og ýmsu öðru.
Ég mæli því með því að þessi breytingartillaga verði felld. Ég mun að minnsta kosti ekki kaupa hlutabréf í þessu skítabixi og mér finnst það líka hættulegt fordæmi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur almennt að krefjast þessarar gríðarlegu þátttöku með svona háum samþykkisþröskuldi. Það er allt í lagi að hafa samþykkisþröskuld en ekki svona háan. Ég vil líka nota þetta tækifæri til að minna á þau loforð sem fjórir af þeim fimm flokkum sem eiga menn á þingi gáfu kjósendum sínum fyrir síðustu alþingiskosningar. 76,3% fengu þeir flokkar sem töluðu fyrir stjórnlagaumbótum og nýrri stjórnarskrá. 2/3 hlutar kjósenda sem greiddu atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október sl. vildu að frumvarp stjórnlagaráðs yrði lagt til grundvallar.
Mig langar aðeins að tala um annað frumvarp sem var fyrst lagt fram á 139. löggjafarþingi. Það hefur verið kennt við Pétur Blöndal sem stendur hér. Það er með enn hærri samþykkisþröskuldi. Ég hef verið flutningsmaður með honum á því og ætla ekkert að afsaka það. Ég skal alveg skýra af hverju ég var með á málinu. Það var fyrst lagt fram 7. apríl 2011. Þá voru uppi deilur í þinginu um hvort fara ætti í þessa vegferð yfirleitt og einhvern veginn hefur þetta kjörtímabil verið þannig að maður hefur haft efasemdir um að þessi ríkisstjórn mundi lifa af mánuðinn, hvað þá meira, og þetta fannst mér ágætt að hafa í vasanum sem baktryggingu þegar þetta ferli var að fara í gang allt saman, að við gætum frestað málinu. Þann 7. apríl 2011 vissi ég ekki allt sem ég veit um stjórnarskrár eftir allt ferlið. Ég áttaði mig ekki á því að þetta væri allt of hár samþykkisþröskuldur en ég var hins vegar búin að átta mig á því áður en ég ákvað að vera á þessu máli síðast. Engu að síður ákvað ég að vera meðflutningsmaður vegna þess að ég hafði enn ekki fulla trú á því að þessi ríkisstjórn mundi sitja út kjörtímabilið eins og hún virðist nú vera að gera og ég vildi hafa eitthvert plan B í rassvasanum. Ég vissi líka að þetta frumvarp færi inn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem ég á sæti, að ég gæti haft áhrif á það til góðs þar og hugðist gera það. Ég tók þátt í umræðum þegar þingmaðurinn mælti fyrir máli sínu í haust, þetta var eitt af fyrstu málum þessa þingvetrar, og gerði grein fyrir þessari afstöðu minni, að ég vildi hafa þennan öryggisventil með okkur í þessa ferð sem hefur verið þyrnum stráð og verið erfiður leiðangur að mörgu leyti.
Það er eitt annað sem mig langar að fjalla um áður en ég lýk máli mínu, önnur breytingartillaga sem hefur verið lögð fram við þetta mál. Það getur svo sem vel verið að hún hafi verið dregin til baka en það er þá nýskeð, ég var bara að hlaupa hérna inn, og það er breytingartillaga um auðlindaákvæðið. Mér finnst allt of rýr árangur eftir allt þetta starf að samþykkja bara hugsanlega auðlindaákvæðið. Í því felst þó ákveðin trygging um að þau stjórnvöld sem taka við og vilja ef til vill fara í stjórnarskrárbreytingar sætti sig við nokkuð háar kröfur þegar kemur að auðlindaákvæði. Ég hef litið á það að hafa auðlindaákvæði þarna með, eftir að ég fór að hugsa þetta mál, búin að liggja svolítið yfir þessu, sem ákveðinn öryggisventil um það hvort þeim sem taka hér við eftir kosningar sé treystandi til að fara skemmri leið í stjórnarskrárbreytingar eða ekki. Ef við gerum þá breytingu að hafa auðlindaákvæðið hérna með tel ég að það væri ákveðinn öryggisventill á það að þeir sem tækju hérna við væru velviljaðir og tækju hagsmuni þjóðarinnar fram yfir hagsmuni sérhagsmunaaðila og vildu tryggja að þjóðin fengi í raun arð af auðlindum sínum og þær yrðu í þjóðareigu. Ég mundi reyndar alls ekki vilja að sú leið sem hér er lögð til yrði farin en hugsanlega hin sem kom frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og fylgdi því nefndaráliti. Eins og ég segi væri það allt of rýr árangur en þó mun meiri og betri en hér er verið að leggja til.
Að lokum óska ég eftir því að málið gangi til nefndar að lokinni 2. umr.