stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Hv. þingmaður hefur ekki mikla trú á fulltrúalýðræðinu. Þingmenn eru kosnir af þjóðinni og hafa (Gripið fram í.) sem slíkir einhverjar rætur hjá kjósendum. Það vill svo til, ég nefni það út af þessu frammíkalli, að ég hef farið í gegnum prófkjör þar sem 6 þús. kjósendur greiddu mér atkvæði og síðan hef ég farið í gegnum margar kosningar þar sem fleiri tugir þúsunda hafa greitt mér atkvæði þannig að þetta frammíkall á ekki rétt á sér, síst hjá þeim sem ekki hafa farið í gegnum eins mikil prófkjör.
Varðandi umdeildu málin og að þau séu önnur á Alþingi en úti í þjóðfélaginu er það eiginlega mjög athyglisvert. Á Alþingi er þröskuldurinn 2/3 í þessari nýjustu breytingartillögu og síðan fer málið til þjóðarinnar þar sem 40% hennar verða að greiða atkvæði með tillögunni. Er þá ekki orðin sæmileg sátt um það bæði á Alþingi og hjá þjóðinni?
Varðandi auðlindaákvæðið þarf maður virkilega að fara að spyrja: Hvaða auðlindaákvæði? Það tekur miklum breytingum. Frá því að þjóðin greiddi um það atkvæði tók það breytingum og það ákvæði sem nú er verið að tala um gerir til dæmis strandveiðar og alla potta og kirnur og slíkt ómögulegt út af jafnræðisákvæðinu. Þetta hefur ekkert verið rætt. Ég er ekkert viss um að almenningur átti sig á því að ef þetta auðlindaákvæði yrði samþykkt mætti ekki lengur, eða það er minn skilningur, hafa strandveiðar nema menn borguðu fullt verð fyrir. Þá væri allur grundvöllur fyrir þeim farinn. Það mætti ekki heldur hafa byggðakvóta. Það mætti ekki hafa línuívilnun. Þetta hefur ekkert verið rætt. Ég er ansi hræddur um að þjóðin yrði dálítið hissa ef þetta yrði samþykkt og allt í einu kæmi þetta í ljós.