stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Maður lendir oft í vandræðum í þessum ræðustól þegar upp koma þingmenn sem tala fyrir hönd þjóðarinnar (BirgJ: … fyrir hönd þjóðarinnar.) eða segja að þjóðin hafi kallað eftir einhverju ákveðnu. Það var vísað í að þjóðin vildi eitthvað (BirgJ: … þjóðaratkvæðagreiðslur …) og spurt hvort ég væri samþykkur því eða mótfallinn, af því að þjóðin vildi eitthvað tiltekið. Mér finnst mjög erfitt að eiga orðastað við þingmenn sem leggja málin svona upp, en ég get bara sagt að ég hafði áhyggjur af því fyrir fram, fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, ég ræddi það í þessum ræðustól, að það væri ákveðin hætta á því í tengslum við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu að menn mundu hver um sig túlka niðurstöðuna sér í vil með einum eða öðrum hætti, til þess að styðja sinn málstað.
Mér fannst til dæmis spurningin um hvort leggja ætti tillögu stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá tiltölulega opin. Hún skildi eftir talsvert marga lausa enda. Þýddi það til dæmis, eins og sumir þingmenn héldu fram, að ekki mætti gera eina einustu efnislega breytingu á frumvarpinu á Alþingi nema fyrir því væru einhver lagatæknileg rök? (BirgJ: Geturðu ekki svarað …?) Af þessari ástæðu finnst mér ekki rétt að endurtaka þennan leik með þjóðaratkvæðagreiðslu með sama málið. Það verður nýs þings að taka ákvörðun um framhald endurskoðunar á stjórnarskránni. Það liggur í augum uppi.
Ég vil segja um mannréttindakaflann að það er þumalputtaregla að mannréttindi eru víðast best tryggð þar sem mannréttindakafli í stjórnarskrá er annaðhvort ekki til staðar eða hann er bara knappur og einfaldur og hefur ekki verið uppfærður reglulega. Á móti eru mannréttindi víða illa tryggð og fótumtroðin þar sem langan texta er að finna um vernd (Forseti hringir.) borgaranna í stjórnarskránni. (Gripið fram í.)