141. löggjafarþing — 112. fundur,  27. mars 2013.

fjölmiðlar.

490. mál
[16:26]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Forseti. Þetta þarf ekki að vera langt. Við höfum lokið heildarendurskoðun þeirra laga er snerta fjölmiðlamarkaðinn. Það má segja að tveggja ára vinnu sé lokið. Við höfum nú þegar samþykkt ný lög um Ríkisútvarpið, sem ég held að styrki mjög stoðir þeirrar stofnunar, og við erum að ljúka núna vinnu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla er snerta eignarhald á fjölmiðlum og fjölmiðlamarkaðinn að öðru leyti. Báðar þessar lagasetningar, sem eru umfangsmiklar heildarendurskoðanir á fjölmiðlalögum og öllu því sem snertir fjölmiðlamarkaðinn og Ríkisútvarpið, verða til þess að bæta mikið stöðuna á fjölmiðlamarkaði, gera hana sanngjarnari á milli ríkisrekinna fjölmiðla og einkarekinna. Við verðum alltaf að gæta að þessu hárfína jafnvægi þarna á milli á þeim örmarkaði sem fjölmiðlun okkar er. Við viljum yfir línuna, held ég að megi segja, tryggja að einkareknir fjölmiðlar geti dafnað og starfað eðlilega á okkar litla markaði en um leið viljum við öflugt Ríkisútvarp sem sinnir skýrt skilgreindu hlutverki.

Til að byggja undir þetta hárfína jafnvægi á milli ríkisrekinna og einkarekinna fjölmiðla var tekið það skref í fyrsta sinn í sögu Ríkisútvarpsins að takmarka auglýsingatíma og kostun dagskrárliða, sem verður meira og minna tekið út nema þegar um er að ræða mjög umfangsmikla alþjóðlega atburði. Til að samræma þetta þarf að breyta gildistökuákvæðum í þegar samþykktum lögum um Ríkisútvarpið og færa allt til áramóta, annars tækju þau gildi strax eins og samþykkt var og Ríkisútvarpið yrði af tekjum upp á um 60 millj. kr. án þess að hafa tíma til að stilla þetta allt saman og aðlagast þessum breytingum, sem ég held að séu mjög til bóta því að um leið fær Ríkisútvarpið óskert útvarpsgjaldið, nefskattinn sem kallaður er, til sín.

Það er því verið að stokka þetta allt upp og gera það þannig að einkareknu miðlarnir hafa meiri umsvif, meira svigrúm til að ná sér í tekjur og auglýsingar af því að verið er að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á þessum markaði á móti. Það er ekki verið að stíga neitt risaskref en svo sannarlega skref í rétta átt að mínu mati.

Því flytjum við breytingartillögu við fjölmiðlalögin sem við vorum með í vinnsluferli og eru núna á milli 2. og 3. umr. þar sem er verið að samræma gildistöku ríkisútvarpslaganna, sem sagt annarra laga, þannig að við 20. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Við gildistöku laganna verður eftirfarandi breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013: 2. málsliður 1. mgr. 19. gr. laganna orðast svo: Þó öðlast 3. mgr. 4. gr. o.s.frv. gildi 1. janúar 2014.

Það er sem sagt verið að stilla saman gildistöku þess að verið er að takmarka kostun og auglýsingatíma og því mjög heppilegt að við gátum stungið þessu þarna inn til að aðlögunartími hjá Ríkisútvarpinu að þessum breytingum yrði eðlilegur.