141. löggjafarþing — 112. fundur,  27. mars 2013.

náttúruvernd.

429. mál
[21:39]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er að mörgu leyti um mjög merkilegt frumvarp að ræða en búseta mín á skógi vöxnum bökkum Lagarfljótsins hefur kennt mér að meta fjölbreytni trjágróðurs. Mér finnst Guttormslundurinn frá 1904 með sínum hávöxnu, beinvöxnu lerkitrjám eins og besta heilsulind. Hugtakanotkunin „framandi“ um þessa íbúa landsins hugnast mér ekki vel þó að ég skilji vel hina alþjóðlegu skírskotun, þýðingin er vond. „Erlendar“ væri svo miklu betra.

Ákveðnir fordómar gagnvart fjölbreytni og ræktun koma fram í hugtakanotkun frumvarpsins og ég skora á núverandi og framtíðarráðherra umhverfismála að vinna að því að brúa þá gjá sem mér finnst hafa myndast á milli skógræktarfólks og annars umhverfisverndarfólks í þessu landi, ekki síst með gætilegri orðræðu.

Ég sé samt enga ástæðu til þess að greiða atkvæði gegn þessu máli en vil árétta þessar ábendingar mínar.