kísilver í landi Bakka.
Virðulegi forseti. Þau frumvörp sem við erum að fara að greiða atkvæði um eftir 2. umr., um uppbyggingu á kísilveri í landi Bakka í Norðurþingi, eru þannig að á vegum Landsvirkjunar hefur því verið lýst yfir að þetta sé framtíðarsvæði til virkjana, enda hefur þeim svæðum verið raðað í nýtingarflokk samkvæmt nýsamþykktri rammaáætlun og er unnið eftir því. Landsvirkjun beinir öllum áhugasömum fjárfestum sem vilja byggja upp atvinnustarfsemi norður, í Norðurþing, á það svæði sem þar er.
Lengi hefur staðið til að byggja upp og loksins er það komið hér, þetta eitthvað annað sem hefur oft verið talað um. Við erum að greiða atkvæði um þá ívilnunarsamninga sem hefur verið farið yfir og þeir margræddir. Menn geta haft alls konar skoðanir á þeim, hvort það er of mikið í lagt eða hvað. Ég hygg að leggja þurfi meira í núna vegna efnahagsástands í heiminum, en ég er líka sannfærður um, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) að nú sé að hefjast samfellt uppbyggingar- og hagvaxtarskeið sem mun standa næstu ár ef ekki áratugi á því svæði. Ekki veitir íslenskri þjóð af að fara að byggja upp, flytja út vörur og skapa meiri gjaldeyri til að hafa m.a. fyrir velferðarkerfi næstu ára.