141. löggjafarþing — 112. fundur, 27. mars 2013.
stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
618. mál
Virðulegur forseti. Ég hef fylgst með þessu máli mjög lengi og tel að um það hafi ríkt frekar góð þverpólitísk samstaða. Ég tel mikilvægt að þetta nýja þjóðarsjúkrahús rísi og það sem fyrst og mun gera það sem ég get til að greiða fyrir því. Ég styð eindregið að málið klárist og nýtt sjúkrahús rísi til að þjóna öllum landsmönnum, alls ekki bara þeim sem eru á höfuðborgarsvæðinu heldur landsmönnum öllum, því að þetta verður þjóðarsjúkrahús.