stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Ég hef lengi verið stuðningsmaður þess að við Íslendingar byggðum okkur nýjan Landspítala, kjölfestu í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Starfsfólkið á það skilið. Það húsnæði sem við erum í núna er engan veginn samboðið nútímaheilbrigðisþjónustu. Ég ber hins vegar þá von í brjósti að innan ekki allt of langs tíma verði fjárreiðulögum breytt á Alþingi þannig að okkur gefist tækifæri til að fara þá leið sem er fljótvirkust til að byggja Landspítala, þ.e. að taka lán til langs tíma hjá lífeyrissjóðum, sem eru með 155 milljarða á ári sem þeir þurfa að koma út hjá sér til fjárfestinga og ríkissjóði sem besti lántakandinn að því og fær líka bestu kjörin, til að flýta þeirri framkvæmd sem þarf til að byggja Landspítalann á þremur, fjórum, fimm árum.
Virðulegi forseti. Með því að breyta fjárreiðulögum gefst tækifæri til að eignfæra spítalann í reikningum Landspítalans. Þá er komin leið til að fara þá leið sem ég er að gera hér að umtalsefni, þ.e. að geta gert það með lánveitingum frá lífeyrissjóðum sem eru lífeyrissjóðir (Forseti hringir.) okkar allra og við getum svo borgað niður með rekstrarsparnaðinum á 30, 40, 50 árum.
Virðulegi forseti. Ég skil hins vegar ekki það sem flýtur yfir og kvíslast hér um ganga að (Forseti hringir.) framsóknarmenn séu að setja þröskulda fyrir því að við getum haldið áfram á fullri ferð (Forseti hringir.) hvað þetta varðar. Ég hélt að full samstaða (Forseti hringir.) væri um þetta, virðulegi forseti. (Gripið fram í.)