141. löggjafarþing — 113. fundur,  27. mars 2013.

náttúruvernd.

429. mál
[23:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Mörður Árnason) (Sf) (andsvar):

Forseti. Svarið við spurningu hv. þm. Róberts Marshall er að framsögumanninum líður alveg ágætlega. Hann hefði frekar viljað hafa þetta öðruvísi, hann hefði viljað fylgja fram frumvarpinu, ekki viljað fresta gildistökunni og ekki viljað setja neinn vafa á framtíðarrammann í kringum lögin gegn akstri utan vega sem eru þó með undanþágum um þann akstur. Hvað varðar þetta mál, hvernig réttarástandið væri frá samþykkt hinna nýju laga og þangað til kortagrunnarnir eru lagðir fram, þá tel ég að við séum að stíga rétt skref. Við erum að bæta annarri skilgreiningu við skilgreininguna í ákvæðinu til bráðabirgða. Þar er einmitt vísað til fáfarnari leiða sem verður að meta í hverju tilviki fyrir sig, fáfarnari leiða sem uppfylla þau skilyrði að, þannig að það sé endurtekið, akstur á þeim sé ekki líklegur til að raska viðkvæmum gróðri, valdi ekki uppblæstri, hafi ekki neikvæð áhrif á landslag og ásýnd lands, hafi engin náttúruspjöll í för með sér, að slóðinn sé sem greinilegastur og varanlegastur og að hefð sé fyrir akstri á honum.

Sú hefð er ýmiss konar. Náttúran er ósköp einfaldlega ekki þannig að hægt sé að flokka hana mjög auðveldlega í excel-skjölin og við verðum að treysta annars vegar ökumönnum og hins vegar lögreglumönnum, eftirlitsmönnum og vörslumönnum landsins og síðan réttarkerfinu til að skera úr í því efni. Ég tel að það sé betra réttarástand en núna ríkir um vegakerfið almennt og um þá vegslóða sem hv. þingmaður nefndi sérstaklega. (Gripið fram í: Hárrétt.)