náttúruvernd.
Forseti. Ég tek undir áhyggjur þingmannsins af vinnubrögðunum hér á þingi. Það vill svo til að hv. þingmaður er sjálfur hluti af þeim vanda sem um er að ræða vegna þess að hann tók þátt, meiri þátt en ég, í ákveðnu samkomulagi sem fól í sér að við vorum sett undir þá pressu að þurfa að semja við stjórnarandstöðuflokkana án þess að þeir tækju þátt, án þess að þeir skrifuðu undir frumvarpið eins og gerist í almennilegum löndum þar sem minnihlutastjórnir semja um stuðning. Það gerist ekki hér. Það gerist í sjónvarpsþættinum Borgen en það gerist ekki á Alþingi Íslendinga, það vita menn.
Það er alveg klárt að við höfum þurft að gefa eftir af því sem við vildum í meiri hlutanum, það geta menn séð með því að bera saman breytingartillögurnar við 2. umr. og síðan þær breytingartillögur sem er settar fram við 3. umr. Á hinn bóginn tel ég að sú breytingartillaga sem er komin fram, sem við hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson berum fram, sé til bóta og ég geri ráð fyrir að við hefðum sett eitthvað af því tagi fram jafnvel þótt ekki hefði verið um þá samninga að ræða sem meðal annars hv. þm. Róbert Marshall tók þátt í að koma á. (RM: Það er rangt.) Ég bendi hv. þm. á að í frumvarpinu sem hann ákvað að samþykkja, en hann tók þátt í mjög víðtækum meiri hluta í umhverfis- og samgöngunefnd, er talað um slóða sem eru notaðir að staðaldri. Hvað þýðir að staðaldri? Þýðir það 15 sinnum, 20 sinnum, 25 sinnum? Það er talað um að þeir séu greinilegir. Hvað þýðir greinilegur vegslóði? Þingmaðurinn er búinn að taka ákvörðun um það, hann styður þann kafla hér. Það sem við bættum við voru þær aðstæður þar sem ekki er um staðaldursakstur að ræða heldur fáfarnari vegi og það sem við segjum um þá er ósköp einfaldlega að þeir verða að uppfylla þau skilyrði, að minnsta kosti að verulegu leyti. Ég ber engan kinnroða fyrir því og er stoltur af þeirri breytingu. (Forseti hringir.) Ég tel hana vera (Forseti hringir.) í samræmi við þá samvinnu sem náttúruverndarmenn, yfirvöld (Forseti hringir.) og útivistarmenn af öllu tagi þurfa að eiga um vernd og not af náttúru Íslands.