141. löggjafarþing — 113. fundur,  27. mars 2013.

náttúruvernd.

429. mál
[23:59]
Horfa

Róbert Marshall (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þar að auki er það alrangt sem hv. þingmaður segir um samkomulagið sem hann telur sig hafa náð við einhvern, — sem við vitum reyndar ekki hver er eða hvort hv. þingmaður hafi náð að laða fleiri fylgismenn að málinu — það tengist ekki á neinn hátt einhverju samkomulagi sem er á ferðinni í þinginu. Það tengist ekki á neinn hátt einhverjum málum sem ég hef verið þátttakandi í að semja um í bakherbergjum hérna. Ég neita því alfarið og vísa því á bug að það tengist með nokkrum hætti einhverjum öðrum málum eða að ég sé aðili að slíku samkomulagi með því og hafi falið hv. þm. Merði Árnasyni einhvers konar samningsumboð til þess að víla og díla um málið. Það er alrangt. Ég veit ekki í hvaða leiðangri hv. þingmaður var í þeim efnum eða hvaða gagn hann telur það gera málinu eða málaflokknum en það er svo sannarlega ekki þannig að hann hafi verið á mínum vegum í því.