141. löggjafarþing — 113. fundur,  28. mars 2013.

kísilver í landi Bakka.

632. mál
[01:09]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er með sérstakri ánægju sem ég greiði atkvæði um þau tvö næstu mál sem marka upphafið að uppbyggingu á Bakka í Þingeyjarsýslum. Þetta er mín síðasta ræða hér í þinginu og ég er sérstaklega ánægður með að þessi framkvæmd skuli vera núna í bígerð og vona að þetta verði íbúum í Þingeyjarsýslum og okkur Íslendingum öllum til heilla. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)