stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Við bætum nú við heimild til að breyta stjórnarskrá með öðrum hætti en tíðkast hefur hingað til. Frá lýðveldisstofnun hefur valdið til breytinga á stjórnarskrá verið í höndum þingsins eins. Það verður, með samþykkt þessa frumvarps og staðfestingu nýs Alþingis á næsta þingi, í höndum þings og þjóðar. Veldur hver á heldur. Í þeirri breytingu felast ný tækifæri til að leiða til lykta í áður óþekktri sátt og samstöðu stjórnarskrárbreytingar sem við viljum öll fá að sjá. Vonandi tekst það vel.