stjórnarskipunarlög.
Frú forseti. Vegna ýmissa gífuryrða sem um þessa tillögu hafa fallið langar mig aðeins að fara yfir í stuttu máli hvað það er sem við erum að samþykkja hérna. Þetta er viðbótarákvæði. Það verður eftir sem áður hægt að breyta stjórnarskránni eftir þeirri leið sem núna er fyrirliggjandi í stjórnarskrá. Þetta er tímabundið ákvæði, þetta er tímabundinn gluggi til að halda áfram heildarendurskoðun og ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskránni. Það er vissulega samþykkisþröskuldur, 40%. Það liggur fyrir í þinginu tillaga frá þingmönnum um að hafa þann samþykkisþröskuld 50%, mér finnst 40% betra. Það þýðir í tölulegu samhengi að um 95 þús. landsmanna þurfa að samþykkja stjórnarskrána. Er það óyfirstíganlegt? Viljum við ekki kannski hafa þann þröskuld, viljum við ekki hafa stjórnarskrána það góða að 95 þús. Íslendingar samþykki hana? Eigum við ekki að stefna að því? (Forseti hringir.)
Svo vil ég vekja athygli á því að þetta er fyrri hluti atkvæðagreiðslunnar um þetta mál. Það er næsta þings að staðfesta þessa stjórnarskrárbreytingu og ég vona svo sannarlega að næsta þing geri það og haldi áfram stjórnarskrárendurskoðuninni og hún endi í (Forseti hringir.) þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem 95 þús. Íslendingar, ef ekki miklu fleiri, samþykkja góða, nýja stjórnarskrá.