141. löggjafarþing — 114. fundur,  28. mars 2013.

þingfrestun.

[01:52]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 141. löggjafarþings, frá 22. mars 2013 eða síðar, ef nauðsyn krefur.

Gjört á Bessastöðum, 21. mars 2013.

Ólafur Ragnar Grímsson.

___________________

Jóhanna Sigurðardóttir.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Kjörtímabilið er nú senn á enda og þingkosningar hafa verið boðaðar þann 27. apríl nk. Eins og kunnugt er hef ég ákveðið að hætta þátttöku í stjórnmálum að afloknu þessu kjörtímabili. Ég vil því nota þetta tækifæri til að þakka hv. alþingismönnum, núverandi og fyrrverandi, sem ég hef starfað með á þessum vettvangi í 35 ár fyrir samstarfið og fyrir góða vináttu sem myndast hefur við marga þingmenn á þessum tíma.

Við höfum oft og tíðum tekist hart á í stjórn og stjórnarandstöðu eins og eðlilegt er þegar stefna og baráttumál skilja stjórnmálaflokka að. Oft hefur umræðan í þingsölum verið óvægin, einkum hin síðustu ár, kannski óvægnari og hatrammari en oft áður. Af þeim sökum hafa síðustu vikur mínar hér á Alþingi verið daprasta tímabilið á mínum þingferli.

Ég tel að það mikilvægasta á hinum stjórnmálalega vettvangi sé að breyta þinghaldinu og koma því í það horf sem tíðkast t.d. á Norðurlöndunum þar sem sjálfsagt þykir að ekki sé hægt með óeðlilegum hætti að tefja endalaust framgang á stjórnarfrumvörpum lýðræðislega kjörinna stjórnvalda. Ég tel að sómi Alþingis sé í húfi að þetta takist.

Í þessari lokaræðu minni á Alþingi Íslendinga vil ég líka hvetja til þess að dregið verði úr köpuryrðum sem eru allt of tíð hér í þingsölum. Ég hvet einnig til þess að þingmenn beri meiri virðingu fyrir hver öðrum og sjónarmiðum hvers annars og að þeir hagi orðræðu sinni eftir því. Þar verða allir að taka sig á og þá mun Alþingi vel farnast í framtíðinni.

Ég óska ykkur, hverju og einu, alls hins besta á þessum vettvangi eða hvar sem þið annars haslið ykkur völl í framtíðinni. Nú þegar ég yfirgef brátt svið stjórnmálanna vona ég að mér endist líf og heilsa til að njóta nokkurra góðra ára án stjórnmálaafskipta að loknum þessum langa kafla í lífi mínu.

Ég vil jafnframt nota tækifærið til að þakka starfsmönnum þingsins fyrir gott samstarf í afar krefjandi þingstörfum á kjörtímabilinu og óska þeim velfarnaðar í framtíðinni. Jafnframt þakka ég starfsfólki ráðuneyta og stofnana og þeim fjölmörgu aðilum á vettvangi félagasamtaka og vinnumarkaðar sem ég hef átt samskipti við í forsætisráðherratíð minni. Þjóðinni allri þakka ég þolinmæði, þrautseigju og umburðarlyndi á einum erfiðasta tíma í sögu þjóðar okkar. Ég óska alþingismönnum og landsmönnum öllum gæfu og velfarnaðar um ókomin ár.

Samkvæmt því umboði sem ég hef áður lýst og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 141. löggjafarþings, er frestað.