142. löggjafarþing — 2. fundur,  10. júní 2013.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[20:54]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Kæru landsmenn. Þessi áratugur verður vendipunktur um sögu Íslands og heimsins alls. Eins og faðir nútímastjórnunar spáði fyrir 14 árum hegðar upplýsingabyltingin sér eins og iðnbyltingin gerði þar á undan og prentbyltingin enn þá fyrr. Í hálfa öld var þessi nýja tækni nánast alfarið notuð til að gera hraðar og ódýrar það sem áður hafði verið gert. Svo kom að því að tækni var notuð til að gera eitthvað algjörlega nýtt og þá gjörbylti hún sviði viðskipta, pólitíkur og samfélaginu í heild. Undiralda síðustu upplýsingabyltingar, prentbyltingarinnar, skolaði í burtu 1000 ára alræðisríki kaþólsku kirkjunnar. Ímyndið ykkur það. Þetta er máttur upplýsinga. Þetta er máttur hins prentaða orðs sem gat dreifst frjálst á milli manna.

Upplýsingabyltingin í dag hefur þegar valdið því að í fyrsta skipti í sögunni er nærri allt mannkyn orðið stjórnmálalega meðvitað og á stjórnmálaleg samskipti sín á milli. Þessi vakning hefur átt sér stað vegna Facebook, YouTube og annarra netsamfélaga sem við þekkjum öll og notum. Það sem þessum netsamfélögum tókst að gera var að komast fram hjá einokun margmiðlunarrisa og ríkisvaldsins á túlkun og miðlun upplýsinga. Rétt eins og prentvél Gutenbergs gerði fyrst Lúther og svo ýmsum samfélögum, bæði trúar- og fræðimanna, fært að komast fram hjá einokun presta og prinsa á túlkun og miðlun upplýsinga. Stjórnmálaleg vakning prentbyltingarinnar færði í kjölfarið megnið af mannkyninu undan alræði presta og prinsa og undir vald lýðræðislegra kjörinna fulltrúa, fólks eins og okkar hér í þessum sal.

Stjórnmálaleg vakning upplýsingarinnar er hafin. Það er engin tilviljun að aukið gegnsæi og beinna lýðræði hafi ratað inn í frumvarp stjórnlagaráðs. Hérna er eitt fallegt eintak af því og á því er blómið gleymmérei. Við skulum ekki gleyma því á þessu þingi og því sem þjóðin kallaði eftir í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október í fyrra, að þetta frumvarp skyldi liggja til grundvallar nýrri stjórnarskrá.

Það er heldur engin tilviljun að píratar eru 600 þús. á heimsvísu, í 60 löndum með 250 fulltrúa á löggjafarsamkundum. Tæknin býður upp á þetta. Tæknin býður upp á gegnsæi, það býður upp á beinna lýðræði og notendur nýju tækninnar munu ekki hætta að krefjast aukins gegnsæis, að nýja tæknin verði notuð í síauknum mæli til að almenningur geti fylgst með okkur sem eigum að starfa í þeirra þágu og gripið inn í ákvarðanatöku okkar þegar hún er ekki nógu góð til að hugsa um hag almennings.

Tillögu til þingsályktunar, um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi tjáningar- og upplýsingafrelsi, tókst að gera í sameiningu á síðasta þingi. Flutningsmenn voru úr öllum flokkum. Það er eitt af þeim grundvallaratriðum sem við þurfum að halda áfram með í þessari vinnunni til að tryggja aukið gegnsæi.

Í frumvarpi stjórnlagaráðs koma fram mjög mikilvægar leiðir til þess að almenningur geti gripið inn í þegar við erum með lélega lagasetningu og kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Almenningur gæti gripið inn í og haft frumkvæði að lagasetningu sem við sjáum okkur ekki fært að framkvæma eins og þeirri sem almenningur hefur kallað eftir, að fyrirtæki geti ekki greitt í sjóði stjórnmálaflokka út af því að það stangast á við ákveðna hagsmuni hér. Það kallar líka eftir auknu gegnsæi. Þetta er nokkuð sem við ættum að nota sem hugmyndir að því hvernig við getum hreyft málinu áfram á þessu þingi.

Framtíðin er núna og hún er í höndum fólks sem skilur internetið, sem skilur nýju upplýsingatæknina, á netinu sem mótar gildismat þess þar sem eru samfélög samhjálpar. Þar eru samfélög sjálfsákvörðunar þar sem fólk hefur rétt til upplýsinga um ákvarðanir um málefni sem það varðar.

Það sem við munum setja í forgang er náttúrlega að koma þessari nýju stjórnarskrá í gagnið. Við munum setja í forgang, eins og kemur fram í stjórnarskrártillögunni, að almenningur geti lagt fram þingmál á Alþingi. Þá munum við setja í forgang þegar kemur að skuldamálum heimilanna — það var mjög ánægjulegt að hlusta á stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að leita skuli allra leiða til þess að aðstoða fólk í þessum vanda — að tryggja meðal annars þær leiðir að fólki verði ekki vísað út af heimilum sínum vegna lána sem hvíla á þeim þar sem óvissa er um réttarstöðu.

Þá þakka ég fyrir. Gleymum þessu ekki! [Réttir upp stjórnarskrártillögu stjórnlagaráðs.]