stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. — Með leyfi forseta:
Ljósið loftin fyllir
og loftin verða blá.
Vorið tánum tyllir
tindana á.
Dagarnir lengjast
og dimman flýr í sjó.
Bráðum syngur lóa
í brekku og mó.
Liðinn vetur var snjóþungur og harður. Bændur urðu fyrir miklum fjárskaða í haust og nú kemur í ljós að tún eru víða kalin að stórum hluta og í síðustu viku bættust svo við aurskriður sem flæmdust um jarðir og rifu upp gróður. Við búum sannarlega við stríða náttúru á stundum sem hefur oftar en ekki þjappað okkur saman sem þjóð í hjálpsemi hvert við annað.
En náttúran er líka blíð og gjöful og það eru góðar fregnir að fiskstofnar okkar fara stækkandi og því hægt að auka veiðiheimildir sem mun skila okkur auknum tekjum í þjóðarbúið.
Sjávarútvegurinn er ein undirstöðuatvinnugrein okkar og það skiptir miklu máli að álögur á hana hreki fyrirtækin ekki úr rekstri. Við þurfum á því að halda allt í kringum landið að sjávarútvegsfyrirtækin, stór og lítil, haldi velli, geti endurnýjað búnað og skapi atvinnu og tekjur inn í sveitarfélögin og á landsvísu.
Hið sama á við um önnur fyrirtæki, það er mikilvægt að rekstrarumhverfi atvinnulífsins sé stöðugt og að hægt sé að gera áætlanir fram í tímann sem geta gengið eftir. Það á meðal annars við um vaxandi atvinnugrein okkar, ferðaþjónustuna. Sú ákvörðun að falla frá áformum fyrri ríkisstjórnar um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu mun styrkja hana og auka tekjur ríkissjóðs af þeirri atvinnugrein til lengri tíma litið.
Skuldastaða heimilanna er sérstakt úrlausnarmál ríkisstjórnarinnar. Bæði Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur lögðu á það áherslu fyrir kosningar að tekið yrði á þeim vanda. Eins og fram kom í stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra eru nú þegar hafnar aðgerðir til þess og væntum við þess að á yfirstandandi sumarþingi verði samþykkt að hefja þá vinnu formlega.
Menntamál eru mér hugleikin og ég fagna því að hæstv. menntamálaráðherra hefur lýst skilningi á bágri stöðu framhaldsskólanna og vilja til að bæta þar úr. Menntun er eitt það verðmætasta sem hver þjóð getur fjárfest í og er mikilvæg hverjum einstaklingi og þroska hans. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á öflugra menntakerfi, að þróun og framtíðarsýn verði mótuð í samstarfi við hagsmunaaðila og að aukin áhersla verði lögð á iðn-, verk- og tækninám, ásamt list- og hönnunargreinum og tengslin við atvinnulífið efld.
Staða heilbrigðisþjónustunnar og greitt aðgengi að henni skiptir alla landsmenn miklu máli. Heilsugæslustöðvar eru mikilvægur fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Langtímastefnumótun í heilbrigðismálum, sem felur meðal annars í sér að efla heilsugæsluna um allt land, er eitt af verðugum verkefnum hæstv. heilbrigðisráðherra.
Aldraðir og öryrkjar eiga að njóta sanngirni, því verða skerðingar á frítekjumarki atvinnu- og fjármagnstekna frá 2009 afturkallaðar og fyrir liggur að endurmeta breytingar á almannatryggingum.
Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Að vera þrautseigur Íslendingur, að eiga sögu og tungu, hefðir og gildi, fyllir okkur stolti. Í aldanna rás höfum við gengið í gegnum ýmsa óáran og hallæri, tekist á við eldgos og ísalög og staðið af okkur storma. Það gerum við einnig nú. Við höldum bjartsýn inn í nýtt kjörtímabil með öfluga ríkisstjórn í fararbroddi. Að liðnum hverjum vetri kemur aftur vor. — Góðar stundir.